Sumarið er tíminn
Það
er merkileg staðreynd að íslensk fyrirtæki og stofnanir
gera lítið af því að nota sumartímann
til að sinna almannatengslum. Á sumrin er frekar lítið
um að vera í þjóðfélaginu og þjóðmálaumræðan
liggur mestan part niðri. Þetta getur oft verið erfiður
tími fyrir fjölmiðlamenn sem þurfa samt sem áður
að fylla jafnmargar mínútur eða blaðsíður
af efni. Þessi tími er oftar en ekki kallaður gúrkutíð
og þá geta fréttamenn ekki verið vandfýsnir
á fréttaefni (Skv. bókinni Mergurinn málsins
eftir Jón G. Friðjónsson) og einmitt þá
ættu fyrirtæki að nota tækifærið og koma
sér á framfæri við fjölmiðla.
Margir benda
á að neysla fjölmiðla sé minni á sumrin,
fólk horfi síður á fréttir, lesi ekki
blöðin o.s.frv. Sjálfsagt er það rétt
að fólk gefur sér minni tíma til að nota
fjölmiðla en samt sem áður fylgist stærstur
hluti landsmanna eitthvað með fréttum. Fjölmiðlamenn
þurfa að fylla sama pláss á sumrin og á
öðrum tímum og því eru fréttir af
starfsemi fyrirtækja sem sendar eru til þeirra líklegri
til að komast að. Að öllum líkindum fá
fréttirnar meira pláss og eru settar á betri stað
en á öðrum árstíma. Þó að
færri séu að lesa, horfa eða hlusta ná slíkar
fréttir athygli og skila því fyrirtækjum árangri.
Gúrkan er
tækifæri!
Það er þó ekki minni fjölmiðlaneysla sem
stjórnendur setja helst fyrir sig þegar lagt er til við
þá að fara í kynningarátak á sumrin,
heldur virðast fyrirtækin vera hálflömuð vegna
sumarfría starfsmanna. Stjórnendur segja gjarnan að
ekkert sé hægt að gera á sumrin af þessum
sökum. Með slíku hugarfari eru fyrirtæki oft að
láta gullin tækifæri til að ná athygli sér
úr greipum renna. Stjórnendur þurfa ávallt
að vera vakandi fyrir tækifærum til að koma sínu
fyrirtæki á framfæri og þau gerast vart betri
en í gúrkutíð fjölmiðlanna.
Við hjá KOM óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs
sumars og minnum á að við verðum í allt sumar
reiðubúin til að aðstoða fyrirtæki og stofnanir
við að nýta sér gúrkuna.
Die
Another Day!
Fáir
halda því fram að auglýsingar séu eina
leiðin til að vekja athygli á vörum en margir urðu
undrandi þegar framleiðandi lúxusbílsins Aston
Martin tilkynnti að hann hygðist ekki nota auglýsingar
næstu tíu árin til að kynna bílinn.
Fólk
á þó ekki að fá að gleyma hinu virta
vörumerki Aston Martin. Í stað auglýsinga ætlar
framleiðandinn að nota almannatengsl til að styrkja ímynd
vörumerkisins. Langtíma kynningarherferð var hrundið
af stað með nýjustu James Bond myndinni Die Another
Day þar sem bíllinn leikur stórt hlutverk. Ákvörðun
um að hætta að nota auglýsingar byggðist á
þeirri trú framleiðandans að kvikmyndin, og sú
athygli sem hún vekti á bílnum, myndi gera auglýsingar
óþarfar.
Sú
aðferð að kynna vörur í gegnum kvikmyndir nýtur
vaxandi vinsælda meðal eigenda alþjóðlegra
vörumerkja og hefur skapað tekjur fyrir James Bond viðskiptaveldið.
Hver gleymir atriðinu úr myndinni Die Another Day þar
sem Aston Martin og Jagúar bílar (bæði vörumerkin
eru í eigu Ford) takast á á ísilögðu
Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi.
Margir
gætu haldið að auðvelt sé að fá umfjöllun
um svo þekkt vörumerki en almannatengsl ganga ekki einungis
út á að fá umfjöllun heldur að fá
rétta umfjöllun sem nær til ákveðins markhóps.
Fyrir Vörumerki eins og Aston Martin er einnig mikilvægt að
umfjöllun veiki ekki ímynd þess í hugum hefðbundinna
viðskiptavina.
Herferð
Aston Martin beindist að fjölmiðlum um heim allan sem fjalla
um lífsstíl og neytendamál. Blaðamenn frá
Bandaríkjunum, Japan, Þýskalandi og Bretlandi heimsóttu
tökustað myndarinnar í Pinewood kvikmyndaverinu nærri
London. Auk þess var blaðamönnum frá stærstu
dagblöðum Bretlands boðið að reynsluaka Aston Martin.
Myndin
vakti þvílíka athygli fjölmiðla að breska
blaðið Daily Mail, sem selst í tveimur og hálfri
milljón eintaka dag hvern, keypti Aston Martin Vanquish (kostar
yfir 20 milljónir) til að gefa sem verðlaun í lesendakeppni
og Aston Martin fékk jákvæða umfjöllun í
mörgum af vinsælustu lífsstíls- og neytendatímaritum
heims. En sú velvild sem skapaðist milli fjölmiðla
og vörumerkisins í tengslum við þessa herferð
er þó ekki síður mikilvæg.
Námskeið
í almannatengslum
Kynning
Og Markaður ehf. býður upp á þrjú námskeið
í almannatengslum fyrir starfsmenn fyrirtækja og stofnana.
Á námskeiðunum er fjallað um hvernig nota má
almannatengsl til að byggja upp og varðveita ímynd fyrirtækja
og stofnana. Í nútíma rekstri er góð ímynd
lykilatriði og það verður að hlúa að
henni á faglegan og markvissan hátt.
Námskeið
í almannatengslum, samskiptatækni og fjölmiðlun
er grunnnámskeið í almannatengslum og veitir þátttakendum
innsýn í hvernig má nota almannatengsl í markaðsstarfi
á skipulegan og áhrifaríkan hátt.
Breyttir
tímar - breyttar aðstæður,
námskeið í almannatengslum sem sérstaklega er
hugsað fyrir starfsmenn opinberra stofnanna. Opinberir aðilar
þurfa ekki síður en fyrirtæki að hlúa
að ímynd sinni en áherslur eru oft aðrar og aðferðafræðin
ólík.
Námskeið
í áfallastjórnun fjallar um hvernig
bregðast á við áföllum og hvernig stjórnendur
geta undirbúið sig og sín fyrirtæki. Reglulega
lenda fyrirtæki og stofnanir í hringiðu neikvæðrar
fjölmiðlaumfjöllunar. Stjórnendur standa oft ráðþrota
frammi fyrir kastljósi fjölmiðlanna og vita ekki hvernig
á að bregðast við. Á námskeiðinu
er farið yfir tækni áfallastjórnunar og hvernig
hún er notuð til að lágmarka skaða á
ímynd og orðspori þegar áfall dynur yfir.
Nokkur
fyrirtæki og stofnanir hafa þegar nýtt sér námskeið
KOM og gert að þeim góðan róm. Þeirra
á meðal eru Íslandsbanki, Sjóvá-almennar,
VSÓ, Iðntæknistofnun og Orkustofnun, svo einhver séu
nefnd. Einnig hafa starfsmenn fjölmargra bæjarfélaga
sótt námskeið, t.d. frá Akranesi, Garðabæ,
Hafnarfirði og Seltjarnarnesi.
Leiðbeinandi á námskeiðunum er Liz Bridgen, ráðgjafi
hjá KOM, en hún hefur áralanga reynslu af almannatengslum
frá Bretlandi þar sem hún hefur unnið fyrir fjölmörg
fyrirtæki og opinberar stofnanir.
Til að
fá frekari upplýsingar um námskeiðin er hægt
að hafa samband við Maríu
Hrund Marinósdóttur ráðgjafa hjá KOM.
Innskotsblöð
með Morgunblaðinu
KOM
sérhæfir sig í að gefa út innskotsblöð
með Morgunblaðinu og hefur gefið út fjölmörg
slík blöð fyrir viðskiptavini sína. Reynslan
sýnir að þetta er ódýr og áhrifarík
leið til að kynna starfsemi fyrirtækja, bæjarfélaga,
stofnana og félagasamtaka. Gallup hefur kannað lestur innskotsblaða
fyrir KOM og þær kannanir sýna að 30% landsmanna
lesa innskotsblöðin að einhverju leyti, eða um helmingur
lesenda Morgunblaðsins og önnur 16% fletta í gegnum þau.
Útgáfa á slíku blaði er því
áhrifarík leið til að ná til mikils fjölda
manna. Umsjón með útgáfu innskotsblaða hjá
KOM hafa Óli Jón Jónsson
og Þorsteinn G. Gunnarsson ráðgjafar.
Í
febrúar sl. kom út blaðið Átak
gegn verslun með konur kemur öllum við.
Blaðið var gefið út af dómsmála- og félagsmálaráðuneytinu
og var markmið útgáfunnar að upplýsa almenning
um þá umfangsmiklu verslun sem á sér stað
í heiminum þar sem konur er seldar mansali milli landa, oftast
til að þræla í kynlífs- og vændisiðnaði.
Blaðið
Endurnýjanleg orka forréttindi
til framtíðar kom út í apríl.
Tilgangur útgáfunnar var að fræða landsmenn
um stöðu orkumála á Íslandi og á
heimsvísu. Sérstök áhersla er í blaðinu
lögð á að útskýra þau forréttindi
okkar að geta nýtt endurnýjanlegar orkulindir í
meira mæli en flestar aðrar þjóðir í
veröldinni. Greint er frá þeim valkostum sem fyrir hendi
eru í að beisla gufuafl og vatnsorku, vinna vetni og nýta
aðra möguleika á þessu sviði. Að útgáfunni
stóð Samorka, samtök veitufyrirtækja á Íslandi.
Í
tengslum við Sjómannadaginn 1. júní verður
gefið út Sjómannadagsblaðið
og mun það verða í fjórða skiptið
sem blaðið kemur út í þessu formi. Í
blaðinu er fjallað um sjómennsku og útgerð og
annað sem snýr að sjómönnum. Sjómannadagsráð
er útgefandi Sjómannadagsblaðsins.

|

María
Hrund Marinós-
dóttir nýr ráðgjafi hjá KOM
María Hrund Marinósdóttir hóf nýverið
störf hjá KOM ehf, sem ráðgjafi í kynningar-
og fjölmiðlamálum. Áður en hún hóf
störf hjá KOM var hún markaðsstjóri DV.
María Hrund er með BA gráðu í stjórnmálafræði
frá Háskóla Íslands
María Hrund mun fyrst og fremst sinna almennri ráðgjöf
í almannatengslum, upplýsinga og samskiptamálum
við innlenda sem erlenda viðskiptavini. Hún mun jafnframt
annast markaðsmál, umsjón með námskeiðshaldi
og nýjum verkefnum.
Sambýlismaður hennar er Finnur Beck, fréttamaður
hjá Sjónvarpinu.
Þorsteinn
G. Gunnarsson til KOM
Þorsteinn G. Gunnarsson, landskunnur fjölmiðlamaður
og almannatengslaráðgjafi, hefur gengið til liðs
við KOM. Hann hefur starfað við útvarp, sjónvarp,
dagblöð, tímarit og við auglýsingagerð.
Þorsteinn vann í nokkur ár við kunna útvarpsþætti
eins og t.d. Dægurmálaútvarpið og Þjóðarsálina.
Undanfarin ár hefur hann starfað sem ráðgjafi
hjá almannatengslafyrirtækinu Athygli. Þorsteinn
er einnig landskunnur fyrir ábendingar til vegfarenda í
útvarpspistlum sínum á vegum Útvarps umferðarráðs.
Hjá KOM mun Þorsteinn starfa við almenna ráðgjöf
í almannatengslum, áfallastjórnun, fjölmiðaráðgjöf
og útgáfumál. Með Þorsteini bætist
við öflugur fagmaður í hóp reyndra ráðgjafa
í fjölmiðlun og almannatengslum hjá KOM.
Þorsteinn er Akureyringur og eftir stúdentspróf
frá MA nam hann íslensku við HÍ. Þorsteinn
er kvæntur Svanhvíti Jóhannsdóttur, hjúkrunafræðingi
og eiga þau tvö börn; Lilju sem stundar líffræðinám
við HÍ og Ara Gunnar nemanda í Breiðholtsskóla.

Það hefur verið
fjallað um eitt og annað á kom.is undanfarið, t.d.
ást og pólitík og hvernig er á að bregðast
við áföllum.
Ást
og pólitík!
Alls fair er stórskemmtileg bók sem fjallar um kosningabaráttu
Bush og Clinton séð frá sjónahóli hjóna
sem unnu hvort fyrir sinn frambjóðandann.
Sagan
á bakvið forsíðumynd Moggans
KOM hefur á undanförnum mánuðum unnið fyrir
alþjóðlega álfyrirtækið Alcoa við
samskipta-, kynningar- og upplýsingamál. Eitt af því
sem að KOM þurfti að sinna á dögunum var umstangið
í kringum undirritun álverssamninganna á Reyðarfirði
laugardaginn 15. mars sl.
Hvernig
tekst þú á við áfall?
Ómar R. Valdimarsson ráðgjafi hjá KOM fjallar
um hvernig stjórnendur fyrirtækja geta undirbúið
sig og sín fyrirtæki undir hugsanleg áföll. Greinin
birtist í Viðskiptablaðinu 19. febrúar 2003.
Markaðstorg
ferðamála innanlands Ferðatorg 2003
Þessa dagana er í fullum gangi undirbúningur fyrir
sýninguna Ferðatorg 2003 sem haldin verður í Vetrargarði
Smáralindar helgina 2.-4. maí nk. Þetta er í
annað sinn sem sýningin er haldin en í fyrra heimsóttu
hana yfir 20.000 manns og þykir sýnt að þessi viðburður
er komin til að vera.

Áslaug
Harðardóttir
Einar
Mar Þórðarson
Herdís
Skúladóttir
Jarþrúður
Jónasdóttir
Jón
Hákon Magnússon
Liz
Bridgen
María
Hrund Marinósdóttir
Ólafur
G. Guðlaugsson
Óli
Jón Jónsson
Ómar
R. Valdimarsson
Þorsteinn
G. Gunnarsson
Póstlisti
KOM
Fréttabréf
KOM ehf. er gefið út að jafnaði annan hvern mánuð
og er sent til viðskiptavina eða annarra vildarvina fyrirtækisins.
Einnig er hægt að skrá sig á póstlista
KOM á heimasíðu fyrirtækisins. Ef þú
vilt ekki fá fréttabréfið sent vinsamlega sendu
tölvupóst á kom@kom.is
með orðinu afskrá í subject" línunni.
Ritstjórar KOM-frétta eru Liz Bridgen og Einar Mar Þórðarson.
|