Nýtt fréttabréf

Eitt af aðalsmerkjum KOM í hart nær 17 ár er að eyða talsverðum tíma og orku í að fræða viðskiptavini og athafnalífið um vaxandi gildi nútíma samskiptatækni og almannatengsla. KOM hefur haldið margar ráðstefnur um mikilvægi almannatengsla og haldið úti öflugum vef þar sem er að finna talsvert fræðsluefni og umfjöllun um aðferðafræði á þessu sviði. Nú ætlum við að stíga enn eitt framfaraskrefið með því að gefa út rafrænt fréttabréf fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila.

Það er löngu ljóst að þau fyrirtæki sem sinna almannatengslum með faglegum hætti skapa sér miklu sterkari ásjónu og ímynd, en þau sem stunda kynningarmálin með hangandi hendi. Það tekur áratugi að skapa sterka ímynd, en fáein augnablik að rústa henni þegar á bátinn gefur. "Communicate or perish" sagði einn af stórforstjórum Bandaríkjanna og eru það orð að sönnu.

Með þessu rafræna riti ætlum við að halda áfram þeirri stefnu að fræða og upplýsa okkar viðskiptavini með það fyrir augum að auðvelda þeim að ná enn meiri árangri í fjölmiðla- og kynningarmálum. Við vonum að lesendur séu ánægðir með þetta framtak okkar og að fréttir og umfjöllun af ýmsu tagi gagnist þeim í daglegu amstri.

Ritstjórar KOM-frétta eru ráðgjafarnir Liz Bridgen, sem hefur 16 ára reynslu í almannatengslum í Bretlandi, og Einar Mar Þórðarson, sem m.a. sinnir áfallastjórnun og stefnumótun fyrirtækja í ímyndarmálum hjá KOM.

Við sendum öllum okkar samskiptaaðilum innilegar jóla- og nýárskveðjur og hlökkum til að vinna með ykkur á nýju ári.

Jón Hákon Magnússon


Stefnumótun í kynningarmálum

Skýr stefna í kynningarmálum er hverju fyrirtæki nauðsynleg. Þó er of algengt að fyrirtæki hafi ekki mótað sér slíka stefnu og að kynningamál þeirra séu ómarkviss og handahófskennd. Afleiðingin er oft og tíðum lítill árangur og mikill kostnaður.

Þegar fyrirtæki hyggst móta sér stefnu í almannatengslum er fyrsta verk stjórnenda að átta sig á því hvað þeir vilja að fyrirtækið standi fyrir og hvaða ímynd þeir vilja að almenningur hafi af því. Oftast hafa stjórnendur nokkuð mótaðar hugmyndir um hvaða ímynd þeir vilja að fyrirtækið hafi en sjaldnast fer sýn þeirra saman við raunveruleikann. Ástæða þessa er gjarnan að fyrirtækinu tekst ekki að miðla sýn stjórnendanna til almennings.

Skýr stefna og markviss vinnubrögð
Fyrirtæki verða að móta sér ákveðna hugmyndafræði og vinna eftir henni. Það er ekki nóg að setja hana á eitthvert plagg sem safnar ryki í skrifborði framkvæmdastjóra heldur verður hún að vera í stöðugri þróun og aðlögun. Mikilvægustu bandamenn fyrirtækis eru starfsmenn þess og því er nauðsynlegt að þeir þekki hugmyndafræði fyrirtækisins, vinni eftir henni og taki þátt í að móta hana. Ef starfsmenn þekkja ekki markmið og hugmyndir stjórnenda um ímynd fyrirtækisins skila þær sér ekki til samfélagsins. Ef takast á að byggja upp eða bæta ímynd fyrirtækis í huga viðskiptavina eða almennings verður það að vera sameiginlegt markmið og átak allra starfsmanna.

Þegar mótuð er stefna í kynningarmálum er mikilvægt að hún sé skýr, framkvæmd hennar sé markviss og hún komi fram í öllu sem fyrirtækið gerir.

KOM hefur áralanga reynslu af stefnumótun í kynningarmálum fyrirtækja og ráðgjöf um hvernig henni skuli framfylgt á árangursríkan og markvissan hátt. Þeir sem vilja kynna sér stefnumótun í kynningarmálum frekar er bent á að hafa samband við Einar Mar ráðgjafa hjá KOM.


Námskeið í almannatengslum

Notkun almannatengsla í markaðsstarfi er tiltölulega ný aðferð á Íslandi. Þó flest fyrirtæki geri sér grein fyrir gildi þess að nota almannatengsl á skipulegan hátt eru færri sem vita hverju þau geta skilað og hversu mikið fyrirtæki geta hagnast á þeim.

Það verður sífellt erfiðara að ná til markhópa hvort sem um er að ræða viðskiptasamfélagið eða neytendur og það er brýnt að stjórnendur fyrirtækja skilji mikilvægi þess að nota almannatengsl sem hluta af markaðsstarfi.

KOM býður upp á heilsdagsnámskeið sem heitir Almannatengsl frá sjónarhóli stjórnenda þar sem þátttakendur fá innsýn í hvernig fyrirtæki geta notað sér almannatengsl og hvaða árangurs þau geti vænst af slíku starfi.

Markaðsdeild Íslandsbanka hefur setið námskeiðið og gaf því góða einkunn og fjölmörg önnur fyrirtæki ætla að senda stjórnendur sína á námskeiðið eftir áramót.

KOM ætlar einnig að bjóða upp á námskeið í áfallastjórnun á næsta ári. Þeir sem hafa áhuga á að fá frekari upplýsingar um námskeiðið geta haft samband við Herdísi hjá KOM.


Oft er í holti heyrandi nær

Hvenær ræddir þú um fyrirtækið þitt við aðra en trausta vini eða vinnufélaga. Það sem starfsmenn fyrirtækja (sérstaklega háttsettir starfsmenn) segja um það getur haft áhrif verð hlutabréfa, starfsanda og almenningsálit. Sérstaklega ef ummælin rata í fjölmiðla.
Sem dæmi um þetta er breska skartgripaverslunin Ratners. Fyrir tíu árum var Ratners mjög vinsæl verslunarkeðja sem seldi ódýra skartgripi og var með um 200 útibú um allt Bretland.

En þegar stjórnarformanni fyrirtækisins Gerald Ratner var boðið að tala á fundi félagsskaparins Institute of Directors, sem er félag forstjóra í Bretlandi, breyttist þetta á einni nóttu. Á þessum fundi þar sem hann hélt sig vera að tala við lokaðan hóp félaga sinna í framkvæmdarstjóra- eða forstjórastétt sagði hann að útskorin glerflaska sem væri seld í búðunum hans á tæp fimm pund væri algert drasl. Eftir mikinn hlátur í salnum bætti hann við að eyrnalokkar sem seldir væru versluninni fyrir minna en pund væru ódýrari en rækjusamloka en hann væri viss um að samlokan entist lengur.

Ratner lét þessi orð falla í þeirri trú að þau myndu ekki fara lengra en því miður fyrir hann var blaðamaður í salnum. Umælum hans voru gerð góð skil í fjölmiðlum daginn eftir og þau þýddi endalok verslunarkeðjunnar. Af þessu má draga þann lærdóm að starfsmenn og sérstaklega yfirmenn verða að huga vel að því hvað þeir segja og hvar þeir segja það, enda getur það haft veruleg áhrif á fyrirtækið.

 

 

 

Breskur ráðgjafi hjá KOM.
Liz Bridgen, sérfræðingur í áfallastjórnun og almannatengslum á sviði neytendamála, hefur starfað hjá KOM síðan í sumar en þá flutti hún til landsins frá Bretlandi. Hjá KOM hefur hún
aðstoðað fjölmörg fyrirtæki við að þróa áhrifaríkar almannatengslaherferðir fyrir neytendavöru. Liz vann hjá Bresku póstþjónustunni í fimm ár þar sem hún var einn af yfirmönnum almannatengsla. Undafarin ár hefur Liz unnið sem ráðgjafi hjá almannatengslafyrirtækjunum The Golley Slater Group og Paskett Public Relations. Þar stjórnaði hún kynningarherferðum fyrir nokkur þekkt vörumerki í Bretlandi, t.d. Bosch, Fiskars, Wall's sausages og Homepride Flour.

Trúir þú á álfasögur?
Ólafur Gunnar Guðlaugsson, hönnuður hjá KOM, hefur gefið út fjórðu bók sína um Benedikt Búálf og félaga hans og heitir bókin Drekasögur. Áður hafa komið út bækurnar Benedikt Búálfur, Eldþursar í álögum og Andinn í Miklaskógi. Nú er verið að sýna leikrit um Benedikt í Loftkastalanum sem hefur hlotið hefur lof jafnt áhorfenda sem gagnrýnenda.
Nú stendur til að gera teiknimynd um Benedikt og ævintýri hans í Álfheimum og er Ólafur í samstarfi við fyrirtækið Caoz um gerð hennar. Caoz gerði teiknimyndina um Litlu lirfuna ljótu sem vakti verðskuldaða athygli fyrir skömmu. Ólafur segir að meiningin sé að gera stutta kynningarmynd um álfinn ráðagóða sem send verði fjölmörgum erlendum aðilum í því skyni að laða þá til samstarfs um fjármögnun og dreifingu. Frekari upplýsingar um Benedikt Búálf er hægt að fá á heimasíðu hans alfheimar.is



Það hefur verið fjallað um eitt og annað á kom.is, undanfarið, t.d. um mátt auglýsinga og mikilvægi þess að meta árangur almannatengsla.

Sjávarútvegráðherra á CNN
Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, ræddi um sjávarútvegsmál á CNN um daginn fyrir tilstilli KOM og samstarfsaðila í Washington.

Ímynd vörumerkja og vitund neytenda
Í bókinni „The fall of advertising and the rise of PR" er því haldið fram að auglýsingar hafi að mörgu leyti misst áhrifamátt sinn þegar kemur að því að byggja upp ný vörumerki og skapa vitund neytenda um þau.

Áhrifamáttur auglýsinga fer dvínandi

Breyttar aðstæður á auglýsingamarkaði voru til umfjöllunar á morgunverðarfundi sem Kynning Og Markaður ehf. (KOM) og Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) efndu til í gær á Grand Hótel. Yfirskrift fundarins var „Er auglýsingin úrelt?" og var tilgangur hans að velta upp spurningum um áhrifamátt auglýsinga og kynna nýjar aðferðir í kynningar- og markaðsstarfi fyrirtækja.

WHY EVALUATE?
Liz Bridgen, ráðgjafi hjá KOM, fjallar um mikilvægi þess að meta árangur almannatengsla og leiðir til þess. Greinin er á ensku.



Áslaug Harðardóttir

Einar Mar Þórðarson

Herdís Skúladóttir

Jarþrúður Jónasdóttir

Jón Hákon Magnússon

Liz Bridgen

Ólafur G. Guðlaugsson


Óli Jón Jónsson


Ómar R. Valdimarsson

Póstlisti KOM
Fréttabréf KOM ehf. er gefið út að jafnaði annan hvern mánuð og er sent til viðskiptavina eða annarra vildarvina fyrirtækisins. Einnig er hægt að skrá sig á póstlista KOM á heimasíðu fyrirtækisins. Ef þú vilt ekki fá fréttabréfið sent vinsamlega sendu tölvupóst á kom@kom.is með orðinu afskrá í „subject" línunni.