|
|
|
| Vinna
fyrir erlenda aðila hefur aukist ár frá ári Með
hverju árinu sem líður aukast verkefni KOM utan Íslands
og fyrir erlenda aðila hérlendis. Þetta er mikil viðurkenning
á fagmennsku ráðgjafa KOM, en þeir hafa þurft
að mæta afar ströngum kröfum um færni sem erlend
fyrirtæki gera til almannatengslafyrirtækja. Í raun
segir þetta að KOM gefi fremstu PR-ráðgjöfum
í Evrópu lítið eftir.
KOM
hefur annast öll fjölmiðla- og samskiptamál fyrir
Alcoa á Íslandi frá snemma árs 2002, sem er
afar krefjandi verkefni. Vinnan er marg flókin en jafnframt skemmtileg
og gefandi. Alcoamenn hafa sagt að KOM gefi sambærilegum erlendum
PR-fyrirtækjum lítið eftir og þykir okkur vænt
um hrósið. KOM hefur einnig verið ráðgefandi
fyrir stærsta verkfræðifyrirtæki heims Bechtel sem
annast byggingu álverksmiðju Alcoa í Fjarðabyggð. Einnig hefur KOM unnið með mörgum þekktum alþjóðlegum PR-fyrirtækjum. Þá hefur KOM annast verkefni undanfarin ár í Bandaríkjnunum í samstarfi við almannatengslafyrirtækið Plexus Consulting Corp í Washington fyrir íslensk stjórnvöld. Ráðstefna um íslenskan áliðnað
Ráðstefnan,
sem var vel sótt, var fyrsta sameiginlega uppákoma álfyrirtækjanna
á Íslandi, Alcan, Norðuráls og Alcoa. Á
ráðstefnunni fluttu fulltrúar álfyrirtækjanna
þriggja, sem hafa víðtæka þekkingu á
áliðnaði og álframleiðslu, fyrirlestra, ásamt
Robert Chase sem var fulltrúi International Aluminum Institute
í London. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, setti ráðstefnuna. Til
ráðstefnunnar var boðið ákvarðanatakendum
í athafnalífinu, stjórnmála- og sveitarstjórnarmönnum
og öðrum þeim er sérstakan áhuga hafa á
áliðnaðinum. Ráðstefnustjóri var Guðfinna
S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavik
og Björn Malmquist, fréttamaður Rúv á Egilsstöðum
stjórnaði fjörlegum umræðum. Afmæli KOM
Frá upphafi hafa ráðgjafar KOM unnið með fjölda fyrirtækja og stofnana við margvísleg verkefni sem lúta að almannatengslum, ímyndarmálum og fjölmiðlun. Mörg stærstu fyrirtæki landsins, ásamt opinberum stofnunum og samtökum eru meðal viðskiptavina KOM. Auk þess sinnir KOM verkefnum fyrir ýmsa erlenda aðila. Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja Sífellt eru
gerðar nýjar og auknar kröfur um upplýsingagjöf
af hálfu fyrirtækja á markaði. Að undanförnu
hafa fjárfestar víða um hinn vestræna heim í
auknum mæli beint sjónum sínum að ýmsu
öðru í rekstri fyrirtækja en fjárhagslegri
afkomu. Að baki þessari þróun býr krafan
um það sem kallað hefur verið ,,ábyrg fjárfesting
( socially responsible investment ). Sú hugmynd að fyrirtæki
beri ábyrgð gagnvart samfélaginu og umhverfinu hefur
náð að festa rætur meðal fjárfesta. Rætt
er um að stefna fyrirtækja í samfélags- og umhverfismálum
sé farin að hafa mikil áhrif á fjárfestingarákvarðanir,
bæði meðal svokallaðra fagfjárfesta og almennra
fjárfesta. Hugtakið samfélagsleg
ábyrgð fyrirtækja ( corporate social responsibility)
hefur verið áberandi í umræðum um fyrirtækjarekstur-
og efnahagsmál að undanförnu. Í sumum ríkjum
hefur verið rætt um að setja lög sem geri stærri
fyrirtækjum skylt að birta upplýsingar, t.d. í
ársskýrslu, um hvað þau leggja af mörkum
til þeirra samfélaga þar sem þau eru að störfum.
Er við því að búast að á næstu
árum muni slík lög verða sett víða í
nágrannalöndum okkar og síðar jafnvel hér
á landi. KOM hefur langa reynslu af því að veita fyrirtækjum ráðgjöf um hvernig eigi að standa að kynningu á stuðningi þeirra við margvíslega starfsemi í samfélaginu; íþróttafélög, góðgerðasamtök, sjálfseignarstofnanir, umhverfisverndarsamtök o.s.frv. Við fylgjumst vel með straumum og stefnum á þessu sviði og erum til taks fyrir þau íslensk fyrirtæki sem vilja gera það líka.
Vonarstjörnur
Visa eru íþróttafólk sem á möguleika
á að komast í keppnislið landa sinna fyrir Ólympíuleikana
í Aþenu árið 2004. VISA EU styður þetta
íþróttafólki.
|
Framkoma í fjölmiðlum Það er
langt frá því sjálfgefið að góður
stjórnandi búi yfir færni til að koma vel fram
í fjölmiðlum. Ráðgjafar KOM hafa þekkingu
og reynslu af störfum í fjölmiðlum og hafa í
gegnum árin liðsinnt fjölda stjórnenda við
framkomu í fjölmiðlum, útvarpi og sjónvarpi. Vefráðgjöf KOM Heimasíður
fyrirtækja og stofnanna eru andlit þeirra útávið.
Engu að síður er allt of algengt að upplýsingar
séu ekki nægilega aðgengilegar og allt að því
faldar inni í flóknum og óaðgengilegum vefsvæðum.
Póstlisti
KOM
|