![]() |
|
|
KOM 20 ára og í fullu fjöri Í upphafi þessa árs varð KOM almannatengsl 20 ára, en það var stofnað af Jóni Hákoni Magnússyni og Indriða G. Þorsteinssyni, rithöfundi, sem starfaði í fáeina mánuði, en þá settist hann að nýju í ritstjórastól Tímans. Fyrsta stórverkefni KOM árið 1986 var stærsta fjölmiðlunarverkefni sem unnið hefur verið á Íslandi. Fyrirtækið tók að sér umsjón og skipulagningu alþjóðlegu fjölmiðlamiðstöðvarinnar sem sett var upp vegna leiðtogafundarins í Höfða í október 1986. Starfsmenn KOM voru þá einungis þrír en á nokkrum dögum fjölgaði þeim í 63 og urðu aftur þrír í lok fundarins. Frá upphafi hafa ráðgjafar KOM unnið með fjölda innlendra sem erlendra fyrirtækja og stofnana við margvísleg verkefni sem lúta að almannatengslum, áfallastjórnun, ásýndar- og ímyndarmálum, fjölmiðlun o.fl. Á sviði almannatengsla hafa ráðgjafar KOM sérhæft sig í áfallastjórnun fyrir fyrirtæki og stofnanir, auk ráðstefnuhalds fyrir innlenda og erlenda aðila, svo sem ESB og Sameinuðu þjóðirnar. KOM hefur haldið alþjóðlegar ráðstefnur og fundi i 12 borgum Evrópu og N-Ameríku. Meðal verkefna á þessu sviði í ár má nefna ráðstefnu fyrir The Economist og 15. ráðstefnuna sem KOM heldur fyrir International Groundfish Forum (GF), sem í ár verður haldin í Lissabon.
Ráðstefna Economist - skráning hafin Undirbúningur fyrir alþjóðlega ráðstefnu the Economist, sem ber yfirskriftina: First Iceland Business and Investment Roundtable - Is business growth sustainable?, gengur vel. Þátttaka verður takmörkuð við 150 ráðstefnugesti og er almenn skráning hafin á vef ráðstefnunnar. Þar má einnig finna upplýsingar um dagskrána. Ræðumenn verða bæði íslenskir og erlendir en meðal hinna erlendu eru menn eins og Bernt Reitan, Executive V- President Alcoa , Thomas Pickering, Senior V-President Boeing Corp ., Steve Perry, Executive V-President Visa Europe, Jurgen Höfling Managing Director DHL Express Nordic og Neil Prothero, editor Economist Intelligence Unit . Íslenskir þátttakendur verða m.a. Halldór Ásgrímsson, Árni M. Mathiesen, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Halldór Kristjánsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Svava Grönfeldt og Styrmir Gunnarsson. Kostendur ráðstefnunnar, ásamt the Economist, eru Landsbankinn, Alcoa, og FL Group. Að ráðstefnunni koma einnig Viðskiptaráð Íslands, Morgunblaðið og KOM almannatengsl, sem vinnur með the Economist að skipulagi og framkvæmd ráðstefnunnar. Ráðgjafar KOM sem vinna að þessu verkefni eru Hulda Bjarnadóttir og Jón Hákon Magnússon. Pistill: Vinsælasti leitarvefur heimsins, Google, rær nú öllum árum að því að endurheimta jákvæða ímynd sína í kjölfar afdrifaríkra mistaka. Fyrirtækið hefur tvívegis á skömmum tíma sætt óvæginni gagnrýni sem sérfræðingar í almannatengslum telja að hafi skaðað orðspor þess verulega. Breska tímaritið PR Week fjallaði nýverið um málið. Þar kemur m.a. fram að svo virðist sem Google-fyrirtækið, sem hefur lifibrauð sitt af því að miðla upplýsingum til notenda um allan heim um leitarvélar sínar, hafi verið berskjaldað fyrir þeirri staðreynd að dag einn þyrfti það e.t.v. að standa frammi fyrir því að miðla upplýsingum um eigin hagi.
Gríðarleg viðbrögð urðu við þessari ákvörðun Google. Þær öldur hafði enn ekki lægt er Google ákvað að sneiða, a.m.k. tímabundið, hjá þýska bílaframleiðandanum BMW í leitarvélum sínum. Ákvörðunin var byggð á þeim ásökunum Google um að BMW falsaði aðsóknartölur af vefsíðum sínum. Þetta óvænta öldurót kallaði á óskipta athygli fjölmiðla sem leituðu í hrönnum eftir skýringum vefleitarfyrirtækisins. Þá kom í ljós að Google var engan veginn mannað til þess að mæta slíkri ágjöf. Almannatengslafulltrúar þess réðu ekkert við álagið og erfitt var að fá greinargóðar upplýsingar. Viðbrögð fjölmiðla létu ekki á sér standa. „Slakaðu á Bill Gates, nú heitir skúrkurinn Google" sagði í fyrirsögn New York Times fyrir skömmu. Svar Google við þessum óvænta andbyr var að stórefla almannatengsl. PR Week getur þess, að í Bretlandi einu hafi Google nýverið samið við þrjú þekkt almannatengslafyrirtæki um þjónustu þeirra. Opinber ástæða þess hefur ekki verið gefin upp en flestir geta sér til um hana; orðpor Google hefur beðið alvarlegan hnekki. Sigurður Sverrisson Frábær árangur VISA liðsins á Vetrarólympíuleikum Vonarstjörnur VISA, Dagný Linda Kristjánsdóttir og Kristján Uni Óskarsson, stóðu sig með stakri prýði á Vetrarólympíuleikunum í Tórínó sem lauk 26. febrúar síðastliðinn. Reyndar stóð Dagný Linda sig svo vel í bruninu að einungis fimm íslenskir skíðamenn hafa náð jafngóðum eða betri árangri á Vetrarólympíuleikum. Dagný hafnaði í 23. sæti í bruninu og fleytti sá árangur henni úr 162. sæti heimslistans í 115. sæti. Dagný var greinilega í góðu formi fyrir brunið því í alpatvíkeppninni náði hún 16. sætinu. Kristján Uni lenti í 28. sæti í sviginu og er nú í 136. sæti á heimslistanum, en í stórsviginu tókst honum ekki að ljúka keppni.
RÚV sýndi frá leikunum alla 16 keppnisdagana auk þess sem RÚV birti heimildaþátt um íslensku keppendurna undir nafninu „Leiðin til Tórínó". Þar var fylgst með undirbúningi íslensku keppendanna, hér heima og erlendis. KOM lagði til myndefni í þann þátt enda hefur myndatökumaður á vegum VISA og KOM fylgt Vonarstjörnunum eftir á ferðalagi um Evrópu. Hulda Bjarnadóttir, Sigurður S. Sverrisson og Þorsteinn G. Gunnarsson hafa unnið sem ráðgjafar KOM fyrir Visa Europe að verkefnum Vornarstjarnanna hér á landi, líkt og fyrirtækið gerði með Vonarstjörnur Visa fyrir Ólympíuleikana í Aþenu 2004. Ánægðir áskrifendur INB Almenn ánægja er með val á fréttum, framsetningu þeirra og efnistök í Iceland News Briefs, sem KOM hefur gefið út tvisvar í viku í rúmlega 11 ár og sendir til hundruða áskrifenda um heim allan. Mikil svörun í nýlegri könnun á meðal áskrifenda staðfestir í öllum meginatriðum markmið INB, en þau eru að gefa sem gleggsta mynd af því helsta sem gerist á Íslandi hverju sinni. Grípum aðeins niður í umsagnir nokkurra áskrifenda: "It is an excellent product, which I find extremely useful," segir Alp Mehmet, sendiherra Bretlands á Íslandi. Oswaldo Munez, aðalræðismaður Íslands í Ekvador, segir orðrétt: "I have never come across a newsletter that is so up-to-date and consistent as the INB." Á meðal þess sem áskrifendur voru spurðir um var hvaða efnisþætti þeir vildu sjá í ríkari mæli en verið hefur. Utanríkis- og efnahagsmál voru oftast nefnd í þessu samhengi. Fast á hæla þeim komu óskir um aukna umfjöllun um viðskiptatengd málefni, svo og iðnað og málefni tengd EB, EES og EFTA. Sökum smæðar fréttablaðsins sjálfs svo og samsetningar áskrifendahópsins er erfitt að auka umfjöllun um eitthvert eitt málefni án þess það dragi úr vægi annars. Niðurstöður könnunarinnar og óskir áskrifenda eru okkur hvatning um að viðhalda þeim metnaði sem einkennt hefur útgáfuna. Þannig er allt efni í INB þýtt af fólki sem hefur ensku að móðurmáli en er jafnframt með afbragðskunnáttu í íslensku. Í könnuninni komu fram margar gagnlegar ábendingar, sem minna okkur á að stöðugt þarf að laga efnistök að breyttum tímum og áherslum. Til þessara ábendinga verður horft í náinni framtíð. Eftir sem áður verður haft að leiðarljósi að INB endurspegli þjóðfélagsumræðu á Íslandi á hlutlausan hátt.
|
Nýtt leiðakerfi Strætó Nýtt leiðakerfi Strætó tók gildi í júlí á síðasta ári. Ekið var samkvæmt því í sjö mánuði. Á þeim tíma tóku stjórnendur Strætó við og unnu úr ábendingum frá viðskiptavinum sínum og vagnstjórum um þætti sem betur mættu fara í leiðakerfinu. Þær breytingar tóku gildi 5. mars síðastliðinn. Breytingarnar voru umfangsmiklar, nýjum akstursleiðum var bætt við kerfið, leiðum breytt og nýjar tímatöflur tóku gildi á öllum akstursleiðum. Afar mikilvægt er að breytingar á leiðakerfi Strætó gangi vel fyrir sig, viðskiptavinir séu meðvitaðir um breytingarnar og geti notað Strætó án erfiðleika strax á fyrsta degi þeirra. Vinnuhópur, skipaður fulltrúum frá KOM Almannatengslum, Argus markaðsstofu og stjórnendum Strætó bs. vann að almannatengsla- og markaðsáætlun vegna breytinganna og að ímyndarmálum fyrir Óhætt er að segja að breytingarnar hafi gengið vel og árekstralaust fyrir sig. Ítarlegu kynningarefni vegna breytinganna var meðal annars dreift til fjölmiðla og sveitarstjórnarmanna í sveitarfélögunum sjö sem reka Strætó bs. Góð samvinna náðist við alla fjölmiðla sem gerðu breytingunni góð skil, þannig að viðskiptavinir Strætó voru mjög vel með á nótunum, eins og að var stefnt. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir og Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafar hjá KOM unnu að málinu fyrir Strætó bs.
Þann 20. september síðastliðinn fengu Vonarstjörnur Visa handleiðslu varðandi andlegan undirbúning fyrir Vetrarólympíuleikana sem fram fara í Tórínó 2006. Íslensku ólympíufararnir Kristján Uni Óskarsson, Dagný Linda Kristjánsdóttir og Elsa Guðrún Jónsdóttir fóru til Tórinó og hittu þar fyrir Vonarstjörnur frá níu löndum í Evrópu. Leiðbeinendur Vonarstjarnanna voru fimm þekktir íþróttamenn, sem allir eiga það sameiginlegt að vera margfaldir verðlaunahafar, þau Björn Dæhlie, Rosa Mota, Deborah Compagnoni, Franz Klammer og Sara Simeoni. KOM vinnur fyrir Visa Europe að verkefnum Vonarstjarnanna hér á landi, líkt og fyrirtækið gerði með Vonarstjörnur Visa fyrir Ólympíuleikana í Aþenu 2004. Hulda Bjarnadóttir og Ingunn Guðbrandsdóttir, ráðgjafar hjá KOM, unnu með evrópskum ráðgjöfum að skipulagningu viðburðarins í Tórínó og Hulda var Vonarstjörnunum og íslensku fjölmiðlafólki til halds og trausts í Tórínó.
Það hefur ekki farið framhjá almenningi að alþjóðaálfyrirtækið Alcoa hefur áhuga á að reisa álver á Bakka við Húsavík. Iðnaðarráðuneytið og Alcoa héldu fjóra upplýsinga- og kynningarfundi á Norðurlandi dagana 31. jan. til 3. febrúar sl. sem rúmlega 700 manns sóttu. Einn fundanna var fyrir sveitarstjórnarmenn frá þeim svæðum sem komu til greina fyrir hugsanlegt álver, en hinir voru opnir borgarafundir. Fjölmennasti fundurinn var haldinn á Fosshóteli á Húsavík en þann fund sátu 320 manns eða 13% íbúa. Alcoamenn lögðu mikla áherslu á að fá neikvæðar spurningar og athugasemdir sem þeir reyndu eftir bestu getu og þekkingu að svara. Ráðgjafar KOM önnuðust skipulag og framkvæmd fundanna í samstarfi við Iðnaðarráðuneytið. KOM hefur unnið fyrir Alcoa frá árinu 2002. Ráðgjafar KOM sem unnu að þessu verki eru Hulda Bjarnadóttir og Jón Hákon Magnússon.
Miðvikudaginn 1. mars stóð KOM fyrir kynningarfundi fyrir fulltrúa erlendra sendiráða á Íslandi. Þetta er í fimmta skipti á jafn mörgun árum sem KOM býður sendiherrum til kynningarfundar, en KOM gefur út fréttabréf á ensku sem heitir Iceland News Briefs (INB).
INB fer með rafrænum hætti til nokkur hundruð áskrifenda um allan heim.
KOM gaf í byrjun febrúar út 12 síðna innskotsblað með Morgunblaðinu undir heitinu „Kínversk áramót - ár hundsins." Blaðið var unnið í samvinnu við Íslensk-kínverska viðskiptaráðið og Kínversk-íslenska menningarfélagið. Megininntak efnis blaðsins var íslenska útrásin í Kína. Með breyttu viðskiptaumhverfi þar eystra hafa opnast fjölmargir möguleikar fyrir vestræn fyrirtæki til fjárfestinga og uppbyggingar starfsemi. Milliganga forsetaembættisins, íslenska sendiráðsins í Kína, Útflutningsráðs Íslands og fleiri opinberra aðila hefur skipt miklu máli um hvernig mál hafa þróast. Æ fleiri líta nú til austurs í leit að tækifærum, jafnt stór sem smá fyrirtæki. Um nokkur þeirra var fjallað í blaðinu. Ábyrgðarmaður blaðsins var Sigtryggur R. Eyþórsson en ritstjóri þess var Sigurður S. Sverrisson ráðgjafi hjá KOM. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, ráðgjafi hjá KOM, annaðist einnig efnisvinnslu.
Töluvert er um að háskólar leiti til KOM um fyrirlestra um almannatengsl. Nýverið hélt Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafi hjá KOM, fyrirlestur um almannatengsl og áfallastjórnun fyrir nemendur í viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri. Fyrirlesturinn var hluti námskeiðs sem nefnist markaðsleg boðmiðlun. Í fyrirlestrinum fjallaði Þorsteinn um ímynd og ásjónu fyrirtækja, almannatengsl og mikilvægi þess að koma réttum og góðum skilaboðum frá fyrirtækjum til samfélagsins. Þungamiðja fyrirlestursins fjallaði um áfallastjórnun og þær aðferðir sem notaðar eru til þess að draga úr neikvæðum áhrifum skakkafalla. Auk háskólans á Akureyri hafa ráðgjafar KOM haldið fyrirlestra um almannatengsl í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Póstlisti
KOM
|