Virt alþjóðleg ráðstefna og öflugt markaðstorg

Seinni hluta októbermánaðar voru þrír ráðgjafar KOM við störf í Amsterdam í Hollandi þar sem þeir sáu um alþjóðlegu sjávarútvegsráðstefnuna Groundfish Forum 2005. Þetta var í fjórtánda sinn sem KOM Almannatengsl annaðist þessa alþjóðlegu ráðstefnu.

KOM átti í upphafi drjúgan þátt í að skapa og skipuleggja þennan vettvang fyrir helstu stjórnendur fiskframleiðslu- og fisksölufyrirtækja heimsins. Mikil vinna fylgir skipulagningu ráðstefnunnar ár hvert, enda að mörgu að hyggja.

Mikil ásókn er í að komast á Groundfish Forum, en þetta er lokuð ráðstefna þar sem einstaklingum er boðin þátttaka að uppfylltum vissum skilyrðum. Á Groundfish Forum kemur saman fólk sem stýrir og stjórnar viðskiptum með sjávarafurðir heimsbyggðarinnar. Ráðstefnan stendur í tvo daga, en einungis fyrir hádegi. Ráðstefnugestir nýta tímann afar vel og frá hádegi og fram á kvöld má sjá þá á tveggja til fjögurra manna fundum út um allt hótel þar sem viðskiptasambönd eru tryggð og gengið frá samningum. Ráðstefnugestir kunna vel að meta þetta fyrirkomulag, því Groundfish Forum er eini vettvangurinn þar sem þessir lykilstjórnendur fiskframleiðslu- og fisksölufyrirtækja heimsins hittast.

Í ár sáttu ráðstefnuna um 200 stjórnendur fyrirtækja frá hátt í 50 löndum í fimm heimsálfum. Þeirra á meðal voru margir Íslendingar sem stjórna sjávarafurðafyrirtækjum landsmanna á Íslandi og í fleiri löndum. Tveir Íslendingar fluttu erindi á ráðstefnunni í ár, Ævar Agnarsson, forstjóri Icelandic USA og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka.

Fyrsta ráðstefnan fór fram í Hamborg, en hefur síðan þá verið haldin í London, Kaupmannahöfn, Madrid, Reykjavík, Barcelona, Munchen og sú 14. var í Amsterdam, eins og áður sagði. Á næsta ári verður Groundfish Forum í Lissabon og hefur KOM þegar tryggt þar fyrsta flokks hótel fyrir ráðstefnuna.

Hulda Bjarnadóttir, Jón Hákon Magnússon og Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafar hjá KOM störfuðu við Groundfish Forum 2005 í Amsterdam.



KOM nær árangri "down under"

Ástralska dagblaðið Canberra Times birti nýverið svar Árna M. Mathiesen fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, við móðgandi ummælum sem Ian Campell, ástralski umhverfisráðherrann, lét falla í viðtali við Daily Telegraph í Sidney í síðasta mánuði.

Birtingin á svari ráðherrans er samstarfsverkefni Plexus Consulting í Washington og KOM Almannatengsla, en fyrirtækin hafa um árabil unnið saman að kynningarmálum og hagsmunagæslu fyrir ráðuneytið.

Strax í upphafi var lögð áhersla á að sjávarútvegsráðherra svaraði fyrir sig á sama vettvangi og birti ummæli ástralska ráðherrans enda tók Daily Telegraph málaleituninni vel þegar haft var samband við blaðið. Eftirgrennslan Plexus og KOM leiddi hins vegar í ljós að hugur fylgdi ekki máli hjá Daily Telegraph og ljóst var að blaðið hugðist í það minnsta draga það verulega á langinn að birta svar íslenska sjávarutvegsráðherrans. Því var gripið til þess ráðs að hafa samband við ríflega tug annarra ástralskra dagblaða og freista þess að fá svarið birt.

Svarið birtist í Canberra Times, sem eins og nafnið gefur til kynna, er gefið út í höfðuðborg Ástralíu. Blaðið nýtur mikillar virðingar og er mikið lesið af þeim sem skipta máli, svo sem stjórnmálamönnum, þingmönnum og ráðherrum sem og þeim sem starfa við opinbera stjórnsýslu.

Pistill:
Af hverju hlustaði risinn?

Hvað varð til þess að Wal-Mart, risinn á bandaríska smásölumarkaðnum, sem um árabil rak verslanakeðju sína með hámarkshagnaðinn einn að markmiði, tók skyndilega upp á því að hlusta á rödd almennings? Tímaritið Business Week veltir því fyrir sér í fréttaskýringu.

Allt fram á mitt þetta ár höfðu stjórnendur Wal-Mart virt að vettugi ásakanir bandarískra neytenda:

  • um kynjabundið launamisrétti
  • um að greiða ekki fyrir yfirvinnu sem starfsmenn voru skyldaðir til að sinna
  • um að fyrirtækið hafi hvatt birgja til að nota ólöglegt vinnuafl til að ná fram lægra innkaupsverði
  • um flutning framleiðslustarfa frá Bandaríkjunum til annarra ríkja, þar sem laun eru mun lægri og réttindi starfsfólks víða fótum troðin
  • um stefnu sem væri fjandsamleg umhverfissjónarmiðum

Hægari vöxtur fyrirtækisins en spár gerðu ráð fyrir, lækkandi verð á hlutabréfum þess, jafnframt því sem fjara tók undan áralangri tryggð og tiltrú neytenda varð til þess að stjórnendur Wal-Mart tóku loks við sér.

Í fyrsta sinn í áratugi ákváðu þeir að hlusta á umkvartanir neytenda. Og þeir gerðu gott betur. Keðjan réði í ágúst til sín teymi sjö þrautreyndra almannatengla. Þeim var fengin vinnuaðstaða í miðju skrifstofurými Wal-Mart og biðu þeir ekki boðanna. Stefna þeirra var og er að svara hverri einustu athugasemd og umkvörtun sem berst - helst samdægurs.

Samhliða skjótum úrlausnum umkvörtunarefna hafa sjömenningarnir á aðeins nokkrum vikum haft frumkvæði því að efla samfélagslega ábyrgð keðjunnar með þeim árangri að eftir því er tekið víða í Bandaríkjunum. Dæmi um gerbreytta stefnu Wal-Mart:

  • Keðjan breytti umbúðum nokkurra leikfanga sem framleidd eru í Asíu. Nýjar umbúðir spara keðjunni flutning á sem svarar 230 gámum á ári.
  • Wal-Mart opnaði nýja umhverfisvæna verslun í Texas í sumar. Raforkuþörf hennar er mætt með sólarrafhlöðum. Hún er kynt með úrgangsolíu og feiti sem fellur til við steikingu kjúklinga.
  • Keðjan hefur opnað átta skrifstofur víðs vegar um Bandaríkin sem hafa það eitt að markmiði að efla tengsl við nánasta umhverfi.
  • Wal-Mart hefur ráðið óháða eftirlitsaðila til þess að gera skyndikannanir á kjörum og aðbúnaði verkafólks sem vinnur í verksmiðjum á vegum keðjunnar.

Viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér! Stjórnendum Wal-Mart virðist það loks ljóst. Hvort of seint er í rassinn gripið er hins vegar önnur saga.

Sigurður Sverrisson


Lyginni líkast

Starfsfólk KOM trúði vart sínum eigin augum, þegar skoðaðar voru heimsóknir á vef fyrirtækisins í ágústmánuði. Þá kom í ljós að heimsóknarmet var slegið mánudaginn 22. ágúst, þegar hvorki meira né minna en 497 gestir heimsóttu vefinn okkar.

Aðeins ein skýring er á þessum mikla gestagangi og hún er sú að þennan sama dag birtist frétt í viðskiptablaði Morgunblaðsins um gríðarlega mikinn lestur á fréttatilkynningu sem KOM og samstarfsfyrirtæki okkar, Plexus Consulting í Washington, sendu á fjármálamiðla í Bandaríkjunum. Fréttatilkynningin var um samstarf Íslenskrar Getspár og Scientific Games og var, samkvæmt hlutlausum og viðurkenndum vefmælingum, opnuð af 65 milljónum manna á þremur dögum.

Svona rúllar boltinn, fréttatilkynningin var lesin af milljónum, fréttin í Morgunblaðinu vakti athygli og fyrir vikið voru heimsóknirnar á KOM vefinn fleiri en nokkru sinni fyrr.

Líflegt blað um Hafnarfjörð

"Hafnarfjörður heillar" var yfirskrift 24 síðna innskotsblaðs sem fylgdi Morgunblaðinu fyrir skemmstu. Ráðgjafar KOM unnu blaðið í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ.

Mikil gróska er í Hafnarfirði um þessar mundir og fjallaði efni blaðsins að nokkru leyti um þá miklu og hröðu þróun sem er í nýjum íbúðahverfum í bænum. Einnig var í blaðinu ítarlegt viðtal við Lúðvík Geirsson bæjarstjóra sem segir Hafnfirðinga óhrædda við að fara ótroðnar slóðir.

Hafnarfjörður þykir einkar fjölskylduvænn bær og í blaðinu var lögð áhersla á að kynna þá þætti sem mestu varða fyrir fjölskyldufólk; skóla, leikskóla, íþrótta- og æskulýðsstarfsemi sem og notalegt, barnvænt umhverfi. Auk framangreinds var ítarleg umfjöllun í blaðinu um menningar- og ferðamál, umsvif við höfnina og atvinnulíf í bænum svo fátt eitt sé nefnt.

Blaðið þótti vel heppnað og í þakkarskeyti til KOM sagði Lúðvík Geirsson bæjarstjóri, "bestu þakkir fyrir frábært, efnismikið og skemmtilegt blað. Það vakti góða lukku hér í bænum."

Ábyrgðarmaður blaðsins var Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar en ritstjóri Sigurður Sverrisson ráðgjafi hjá KOM.


Handleiðsla í Tórinó

Þann 20. september síðastliðinn fengu Vonarstjörnur Visa handleiðslu varðandi andlegan undirbúning fyrir Vetrarólympíuleikana sem fram fara í Tórínó 2006. Íslensku ólympíufararnir Kristján Uni Óskarsson, Dagný Linda Kristjánsdóttir og Elsa Guðrún Jónsdóttir fóru til Tórinó og hittu þar fyrir Vonarstjörnur frá níu löndum í Evrópu. Leiðbeinendur Vonarstjarnanna voru fimm þekktir íþróttamenn sem allir eiga það sameiginlegt að vera margfaldir verðlaunahafar þau Björn Dæhlie, Rosa Mota, Deborah Compagnoni, Franz Klammer og Sara Simeoni.

KOM vinnur fyrir Visa Europe að verkefnum Vornarstjarnanna hér á landi, líkt og fyrirtækið gerði með Vonarstjörnur Visa fyrir Ólympíuleikana í Aþenu 2004. Hulda Bjarnadóttir og Ingunn Guðbrandsdóttir, ráðgjafar hjá KOM, unnu með evrópskum ráðgjöfum að skipulagningu viðburðarins í Tórínó og Hulda var vonarstjörnunum og íslenskum fjölmiðlafólki til halds og trausts í Tórínó.


Fjölskyldudagur í Fjarðabyggð

Í lok sumars voru hafnar framkvæmdir við byggingu fjölnota íþróttahúss og líkamsræktarstöðvar á Reyðarfirði. Alcoa Fjarðaál, sem stendur að byggingu álvers í Fjarðabyggð, styrkir verkefnin um tæpar 90 milljónir króna. Mannvirkin munu gjörbreyta aðstæðum til heilsuræktar og íþróttaiðkunar á Austurlandi en íþróttahúsið mun rúma knattspyrnuvöll í fullri stærð ásamt 100 metra hlaupabraut. Alcoa Fjarðaál, sem stendur að byggingu álvers í Fjarðabyggð, styrkir verkefnin um tæpar 90 milljónir króna. Mannvirkin munu gjörbreyta aðstæðum til heilsuræktar og íþróttaiðkunar á Austurlandi en fjölnotahúsið mun rúma knattspyrnuvöll í fullri stærð og 100 metra hlaupabraut.

Í tilefni þessa var efnt til fjölskylduhátíðar á Reyðarfirði þar sem boðið var upp á fjölskylduskokk. Mjög góð þátttaka var í skokkinu og fengu allir þátttakendur sérmerktan bol og verðlaunapening. Solla stirða úr Latabæ mætti á svæðið, skokkaði með og tók svo lagið og gerði teygjuæfingar með fólkinu. Þátttakendum var síðan boðið í grillveislu og þótti vel hafa tekist til á þessum fjölskyldudegi í Fjarðabyggð.

Hulda Bjarnadóttir og Ingunn Guðbrandsdottir, ráðgjafar hjá KOM, aðstoðuðu Alcoa Fjarðaál og Fjarðabyggð við skipulag dagskrárinnar eystra.


Nýr starfsmaður hjá KOM

Nýr ráðgjafi hefur bæst í hópinn hjá KOM Almannatengslum, en hann er Sigurður Sverrisson (f. 1957) sem á að baki langan feril og mikla reynslu í blaðamennsku, útvarpi og ráðgjafastörfum í almannatengslum.

Sigurður hóf blaðamennskuferil sinn á Tímanum 1978-'79 en starfaði síðan á DV '79 til '82 og Morgunblaðinu '82 til '84. Sigurður gaf út og ritstýrði Skagablaðinu á Akranesi í áratug áður en hann hóf störf sem ráðgjafi hjá almannatengslafyrirtækinu Athygli. Hann var einn stofnenda PR (Pje Err) almannatengsla árið 1999 en lét af störfum þar síðla árs 2000. Sigurður vann um nokkurra ára skeið við þáttagerð hjá Rás 2 og hefur skrifað greinar, fréttir og viðtöl í fjölda blaða og tímarita. Auk þess hefur hann skrifað nokkrar bækur um íþróttamál.

Hjá KOM sinnir Sigurður almennri ráðgjöf á sviði almannatengsla og auk þess textagerð, útgáfumálum, samskiptum við fjölmiðla og ýmsum sérverkefnum.


Rétt viðbrögð skipta öllu máli

Þegar áfall dynur yfir fyrirtæki er mikilvægt að stjórnendur kunni að bregðast við og senda rétt skilaboð út í umhverfið. Kröfur um upplýsingagjöf af hálfu fyrirtækja og stofnana fara sífellt vaxandi. Almenningur og þeir sem hagsmuna eiga að gæta sætta sig ekki við að fá ekki svör og upplýsingar fljótt og vel. Fjölmiðlar eru aðgangsharðari en áður.

Ef ekki er brugðist rétt við áfallinu á fyrstu klukkutímunum getur fyrirtækið orðið fyrir varanlegu álitstjóni. Eina vissan um vondu fréttina er sú að hún birtist ætíð fyrirvaralaust. Mörg dæmi eru til um fyrirtæki, innlend sem erlend, sem hafa orðið fyrir verulegum skakkaföllum og jafvel gjaldþrotum vegna þess að þau brugðust rangt við áfalli sem þau urðu fyrir.

KOM hefur mikla reynslu af ráðgjöf um áfallastjórnun (crisis management) og fyrstu viðbrögð þegar vonda fréttin dynur yfir fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök. Mörg fyrirtæki, stofnanir og samtök hafa leitað til KOM á undanförnum árum eftir aðstoð við að glíma við áföll og "vondar fréttir", sem hafa skaðað ímynd þeirra og trúverðugleika. KOM hefur einnig staðið fyrir námskeiðum fyrir stjórnendur fyrirtæka um hvernig best er að bregðast við áföllum.



Áslaug Harðardóttir
Hulda Bjarnadóttir
Ingunn Guðbrandsdóttir
Jón Hákon Magnússon
Liz Bridgen
Ólafur G. Guðlaugsson
Sigrún Kristinsdóttir
Sigurður Sverrisson
Þorsteinn G. Gunnarsson

Póstlisti KOM
Fréttabréf KOM ehf. er gefið út að jafnaði fjórða hvern mánuð og er sent til viðskiptavina eða annarra vildarvina fyrirtækisins. Ef þú vilt ekki fá fréttabréfið sent vinsamlega sendu tölvupóst á kom@kom.is með orðinu afskrá í "subject" línunni.