Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

20.12.2002

KOM Â- fréttir

KOM ehf. hefur hafið útgáfu á rafrænu fréttabréfi sem sent er til viðskiptavina og annarra vildarvina fyrirtækisins með tölvupósti.

13.12.2002

Sjávarútvegsráðherra á CNN

Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, ræddi um sjávarútvegsmál á CNN um daginn fyrir tilstilli KOM og samstarfsaðila í Washington.

25.11.2002

Ímynd vörumerkja og vitund neytenda

Í bókinni "The fall of advertising and the rise of PR" er því haldið fram að auglýsingar hafi að mörgu leyti misst áhrifamátt sinn þegar kemur að því að byggja upp ný vörumerki og skapa vitund neytenda um þau.

21.11.2002

Áhrifamáttur auglýsinga fer dvínandi

Breyttar aðstæður á auglýsingamarkaði voru til umfjöllunar á morgunverðarfundi sem Kynning Og Markaður ehf. (KOM) og Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) efndu til í gær á Grand Hótel. Yfirskrift fundarins var "Er auglýsingin úrelt?" og var tilgangur hans að velta upp spurningum um áhrifamátt auglýsinga og kynna nýjar aðferðir í kynningar- og markaðsstarfi fyrirtækja.

18.11.2002

Er auglýsingin úrelt?

KOM og SVÞ bjóða til morgunverðarfundar þar sem fjallað verður um árangur auglýsinga og vanýtta möguleika í almannatengslum á sviði neytenda vöru.

6.11.2002

Nýr starfsmaður hjá KOM

Óli Jón Jónsson er nýr starfsmaður hjá KOM og mun hann annast ritstjórn og útgáfumál á vegum fyrirtækisins, auk þess að sinna ráðgjöf á sviði almannatengsla við innlenda og erlenda viðskiptavini.

6.11.2002

Landsímaskýrslan

Landsímamálið er ekki dautt úr öllum æðum og Morgunútvarp Rásar 2 fékk Jón Hákon Magnússon til að gefa álit sitt á því hvað væri til ráða fyrir Símann.

24.10.2002

Jákvæður orðstír gerir gæfumuninn

Liz Bridgen, sérfræðingur í almannatengslum, kom hingað til lands þegar eiginmaður hennar var ráðinn til Háskólans á Akureyri. Nú hefur hún hafið störf fyrir almannatengslafyrirtækið Kynningu og markað - KOM ehf. sem ráðgjafi. Henni líkar vel að búa í Eyjafirði.

24.10.2002

Ítarlegt námskeið

Liz Bridgen heldur heils dags námskeið í almannatengslum fyrir stjórnendur íslenskra fyrirtækja, en fyrsta námskeiðið, fyrir starfsmenn Íslandsbanka, er á morgun.

16.10.2002

Mótmælastaða við skrifstofur KOM náði athygli Alcoa og fjölmiðla

Mótmælendur fyrir utan skrifstofur KOM ehf. á meðan fulltrúar Alcoa funduðu nýverið með fulltrúum stjórnvalda, stjórnarandstöðunnar, umhverfisverndarsamtökum, skógræktar- og landgræðslufræðingum.