Fréttir
25.9.2003
Guðrún E. Norðdahl 101 árs, elsti viðskiptavinur Öryggismiðstöðvarinnar
Guðrún E. Norðdahl, elsti viðskiptavinur Öryggismiðstöðvar Íslands, varð 101 árs þann 23. september. Við það tækifæri færði Öryggismiðstöðinni Guðrúnu blómvönd. Guðrún er ótrúlega ern, þrátt fyrir háan aldur og segist lesa sig í svefn á hverju kvöldi.
18.9.2003
KOM tekur þátt í undirbúningi EXPO 2005
Að undanförnu hafa starfsmenn KOM unnið með KREAB, fjölþjóðlegu almannatengslafyrirtæki, í tengslum við hugmyndasamkeppni við hönnun á sýningarskála fyrir öll Norðurlöndin vegna heimssýningarinnar EXPO 2005 sem haldin verður í Japan.
12.9.2003
Kvennalandsliðið í knattspyrnu gefur veggspjöld frá HEKLU
Stelpurnar í kvennalandsliðinu í knattspyrnu vöktu mikla athygli þegar hópurinn mætti í verslun Hagkaups í Smáralindinni í dag, 12. september, daginn fyrir landsleikinn gegn Pólverjum.
8.9.2003
900 tölublöð af INB
Starfsfólk KOM ehf. fagnaði í dag útkomu 900. eintaksins af Iceland News Briefs - INB. KOM hóf útgáfu á INB árið 1994 til að mæta skorti á fréttamiðli á ensku með yfirliti yfir helstu fréttir frá Íslandi
5.9.2003
Um 2300 ársverk skapast á byggingartíma álvers
Fulltrúar Fjarðaáls og verktakans Bechtel Group Inc. undirrituðu í dag, föstudaginn 5. september, samning um byggingu álvers á Reyðarfirði. Samkvæmt samningnum mun Bechtel taka að sér að reisa 322.000 tonna álver á Reyðarfirði og er áætlað að verkinu verði lokið árið 2007.
3.9.2003
Eyjólfur Sverrisson heimsækir KR-stráka
Meðlimir fimmta flokks KR í knattspyrnu fengu óvænta heimsókn á æfingu í gær. Þar var á ferðinni Eyjólfur Sverrisson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og landsliðsmaður, sem færði hverjum þeirra veggspjald með mynd af íslenska knattspyrnulandsliðinu, auk þess sem hann brá á leik og sýndi strákunum sannkallaða atvinnumanna takta.
2.9.2003
Stal sjónvarpsdagskrá og tilboði frá pizzastað
Stjórnstöð Öryggismiðstöðvar Íslands fékk boð um innbrot í fyrirtæki í austurborginni á laugardagskvöldið. Þjófurinn, sem hræddist vælið í þjófavarnarkefinu, hljóp á brott án þess að stela nokkru. Það eina sem hann gerði af sér var að brjóta upp póstkassa fyrirtækisins en hafði ekki annað upp úr krafsinu en sjónvarpsdagskrá og tilboð frá pizzastað.








