Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

30.1.2004

Nýtt hjúkrunarheimili á Vífilsstöðum

Nýtt hjúkrunarheimili tók formlega til starfa í dag, föstudaginn 30. janúar, á Vífilsstöðum, en heilbrigðisráðuneytið hefur samið við Sjómannadagsráð um að Hrafnista annist rekstur heimilisins.

28.1.2004

Ólympíuleikar ímyndunaraflsins

Ólympíuleikum ímyndunaraflsins var hleypt af stokkunum í dag, miðvikudaginn 28. janúar í Snælandsskóla í Kópavogi.

27.1.2004

Almannatengsl og "lobbying" í Washington

Á fræðslufundi í Almannatengslafélagi Íslands (AÍ) fimmtudaginn 23. janúar s.l. flutti Steven Worth, framkvæmdastjóri Plexus Corp. í Washington, fræðsluerindi um almannatengsl og "lobbying" í höfuðborg Bandaríkjanna.

24.1.2004

Rafmagn í 100 ár

Nú í ár eru liðin hundrað ár frá því hugsjóna- og athafnamaðurinn Jóhannes J. Reykdal virkjaði Hamarkotslækinn í Hafnarfirði

22.1.2004

Örn Arnarson heimsótti gamla skólann sinn

Í dag, fimmtudaginn 22. janúar, heimsótti Örn Arnarson sundkappi Víðistaðaskóla sem er hans gamli grunnskóli. Sigurður Björgvinsson skólastjóri tók á móti Erni ásamt gömlum kennurum hans.

22.1.2004

Eimskipafélagið nírætt

Starfsmenn KOM hafa undanfarnar vikur unnið með starfsmönnum Eimskipafélags Íslands að undirbúningi hátíðarhalda vegna 90 ára afmælis félagsins.

15.1.2004

18 ára og enn á uppleið

Í dag, 15. janúar, heldur starfsfólk KOM upp á 18 ára afmæli fyrirtækisins, sem er elsta ráðgjafafyrirtæki landsins í almannatengslum.

15.1.2004

Ný ásýnd og nýjar áherslur hjá Símanum

Starfsfólk Símans hefur nú í rétt um það bil ár unnið að mörkunarvinnu til að skerpa framtíðarsýn fyrirtækisins. Árangur þeirrar vinnu var kynntur á fjölmennum blaðamannafundi í dag.