Fréttir
22.9.2005
Hugmyndir óskast frá almenningi!
Undirbúningur að alþjóðlegri hugmyndasamkeppni um skipulag Vatnsmýrarinnar er þegar hafinn með umfangsmiklu samráði við hagsmunaaðila. Nú er komið að því að gefa almenningi færi á að leggja fram sínar hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins.
20.9.2005
Vonarstjörnurnar og andlega hliðin
Ólympíufararnir Dagný Linda Kristjánsdóttir, Kristján Uni Óskarsson og Elsa Guðrún Jónsdóttir, sem öll eru í hópi Vonarstjarna Visa, fengu í dag andlegan undirbúning fyrir keppni á Vetrarólympíuleikunum.
16.9.2005
Rétta leiðin
Samgönguvika hófst í Reykjavík og 999 öðrum evrópskum borgum í dag. Þema vikunnar í ár er „Clever commuting“ sem á íslensku hefur hlotið heitið „Rétta leiðin.“
9.9.2005
Bankarnir og Þyrping leggja til 21 milljón króna í hugmyndasamkeppni um skipulag Vatnsmýrarinnar
Reykjavíkurborg hefur gert samstarfssamning við Íslandsbanka, KB banka, Landsbankann og Þyrpingu vegna alþjóðlegrar hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar, viðamikils samráðsferlis í aðdraganda hennar og opnunar skipulagssýningu í Listasafni Reykjavíkur.
8.9.2005
Aukið virði sjávarfangs
Aukið virði sjávarfangs” var yfirskrift ráðstefnu sem fram fór á Nordica Hotel í dag, 8. septenmber. Þar fluttu fimm fyrirlesarar um mögulegar leiðir til að auka verðmæti sjávarafurða.
5.9.2005
Stærsta íþróttahús á Austurlandi rís í Fjarðabyggð
Fullkomið fjölnota íþróttahús og líkamsræktarstöð munu innan tíðar rísa á Reyðarfirði og eru byggingarframkvæmdir þegar hafnar en stefnt er að því að íþróttahúsið verði tekið í notkun næsta vor.








