Fréttir
27.12.2007
Jólablað Hrafnistubréfsins
Heimilisfólk á Hrafnistuheimilunum fengu Hrafnistubréfið á aðventunni. Í blaðinu eru fróðlega og skemmtileg viðtöl við íbúa Hrafnistuheimilanna sem sannarlega muna tímanna tvenna.
21.12.2007
Alþjóðleg fjölmiðlun fyrir iðnaðarráðuneyti
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum samþykkti ríkisstjórn Íslands fyrr í vikunni tillögu Össurs Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra um að stefnt verði að útboði sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi.
14.12.2007
Byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði er lokið
Byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði er lokið og voru framkvæmdir á áætlun. Af því tilefni undirrituðu fulltrúar Alcoa og Bechtel formlega yfirlýsingu um lok framkvæmda í nýrri starfsmannabyggingu Fjarðaáls við álverið í Reyðarfirði fimmtudaginn 13. desember 2007. Ekkert alvarlegt slys varð á meðan á framkvæmdum stóð, sem teljast verður einstakt miðað við umfang verksins.
14.12.2007
KOM hefur útgáfu á Iceland Energy and Industry
KOM almannatengsl hafa hafið útgáfu á vikulegri samantekt á umfjöllun íslenskra fjölmiðla um stóriðju og orkumál, á ensku. Skýrslan ber heitið Iceland Energy and Industry (IEI).
10.12.2007
Þróunarfélagið leggur spilin á borðið
Þróunarfélag Keflavíkur hélt fjölmiðlafund í dag, mánudaginn 10. deseber, þar sem gagnrýni á starfsemi Þróunarfélagsins var svarað. Á fundinum kom meðal annars fram að 96% fasteigna á Keflavíkurflugvelli var seldur hæstbjóðendum.
6.12.2007
Samfélagssjóður Alcoa styrkir endurbætur Sómastaða
Sómastaðir við Reyðarfjörð, sem útvegsbóndinn Hans Jakob Beck byggði ári 1875, er eitt merkilegasta hús landsins, en þetta er eina portbyggða steinhúsið sem varðveist hefur á Íslandi. Sómastaðir komust í vörslu Þjóðminjasafns Íslands árið 1988 og samfélagssjóður Alcoa hefur veitt safninu styrk til vinna endurbætur á húsinu.
26.11.2007
Rúmlega 3000 manns á markaðstorgi Nýfundnalands og Labrador í Perlunni
KOM almannatengsl skipulögðu markaðstorg í Perlunni helgina 24.-25. nóvember 2007 fyrir viðskiptaráðuneyti Nýfundnalands og Labrador og aðra opinbera aðila og félagasamtök ytra. Yfir 70 manns frá Nýfundnalandi og Labrador komu til Íslands til að kynna og selja fjölbreytta vöru og þjónustu. 3000 manns sóttu sýninguna sem gekk í alla staði mjög vel.
24.11.2007
Íslands Hrafnistumenn - þrefallt afmælisblað
Sjómannadagsráð og Hrafnistuheimilin fagna þremur stóráföngum nú í ár. 70 ár eru liðin frá stofnun Sjómannadagsráðs, 50 ár frá því að Hrafnista í Reykjavík tók til starfa og 30 ár frá því að Hrafnista í Hafnarfirði hóf starfsemi sína.
15.11.2007
Markaðstorg Nýfundnalands og Labrador: Athyglisverð sýning í Reykjavík til að styrkja viðskiptatengsl grannríkjanna
Tuttugu fyrirtæki frá Nýfundnalandi og Labrador í Kanada halda vöru- og þjónustusýningu í Perlunni helgina 24.-25. nóvember næstkomandi. Sýningin ber heitið Markaðstorg Nýfundnalands og Labrador. Undanfarin tvö ár hefur þetta kanadíska fylki unnið skipulega að því að byggja upp gagnkvæm viðskiptatengsl við Ísland. Sýningin er liður í átaki þarlendra hagsmunaaðila til að auka samskiptin á sem flestum sviðum.
14.11.2007
Veggspjald og ljóðavefur til heiðurs Jónasi Hallgrímssyni
Í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar heiðrar Mjólkursamsalan í samstarfi við Hvíta húsið minningu hans með útgáfu á nýju veggspjaldi og vef með íslenskum náttúruljóðum.








