Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

27.12.2007

Jólablað Hrafnistubréfsins

Heimilisfólk á Hrafnistuheimilunum fengu Hrafnistubréfið á aðventunni. Í blaðinu eru fróðlega og skemmtileg viðtöl við íbúa Hrafnistuheimilanna sem sannarlega muna tímanna tvenna.

21.12.2007

Alþjóðleg fjölmiðlun fyrir iðnaðarráðuneyti

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum samþykkti ríkisstjórn Íslands fyrr í vikunni tillögu Össurs Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra um að stefnt verði að útboði sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi.

14.12.2007

Byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði er lokið

Byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði er lokið og voru framkvæmdir á áætlun. Af því tilefni undirrituðu fulltrúar Alcoa og Bechtel formlega yfirlýsingu um lok framkvæmda í nýrri starfsmannabyggingu Fjarðaáls við álverið í Reyðarfirði fimmtudaginn 13. desember 2007. Ekkert alvarlegt slys varð á meðan á framkvæmdum stóð, sem teljast verður einstakt miðað við umfang verksins.

14.12.2007

KOM hefur útgáfu á Iceland Energy and Industry

KOM almannatengsl hafa hafið útgáfu á vikulegri samantekt á umfjöllun íslenskra fjölmiðla um stóriðju og orkumál, á ensku. Skýrslan ber heitið Iceland Energy and Industry (IEI).

10.12.2007

Þróunarfélagið leggur spilin á borðið

Þróunarfélag Keflavíkur hélt fjölmiðlafund í dag, mánudaginn 10. deseber, þar sem gagnrýni á starfsemi Þróunarfélagsins var svarað. Á fundinum kom meðal annars fram að 96% fasteigna á Keflavíkurflugvelli var seldur hæstbjóðendum.

6.12.2007

Samfélagssjóður Alcoa styrkir endurbætur Sómastaða

Sómastaðir við Reyðarfjörð, sem útvegsbóndinn Hans Jakob Beck byggði ári 1875, er eitt merkilegasta hús landsins, en þetta er eina portbyggða steinhúsið sem varðveist hefur á Íslandi. Sómastaðir komust í vörslu Þjóðminjasafns Íslands árið 1988 og samfélagssjóður Alcoa hefur veitt safninu styrk til vinna endurbætur á húsinu.