Fréttir
12.12.2008
Jólablað Hrafnistubréfsins
Jólablað Hrafnistubréfsins er komið út og er nú í dreifingu. Í blaðinu eru áhugaverð og skemmtileg viðtöl við íbúa Hrafnistuheimilanna í bland við myndir og frásagnir af lífi og starfi á heimilunum.
28.11.2008
Nærri 80% landsmanna telja að álver hafi jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf
Rúmlega 78 prósent landsmanna telja að álver hafi frekar eða mjög jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Aðeins rúmlega átta prósent telja áhrifin frekar eða mjög neikvæð. Þetta kemur fram í niðurstöðum landskönnunar sem Capacent Gallup gerði nýlega fyrir Alcoa Fjarðaál.
19.11.2008
Ræður á Færeyjafundi
Morgunverðarfundurinn sem KOM stóð að ásamt Byr, Landsamtökum lífeyrissjóða og Íbúðalánasjóði stóðu að fundinum, auk Sendistofu Færeyja á Íslandi vakti verðskuldaða athygli. Nokkuð hefur verið um að fólk hafi óskað eftir því að fá ræður fyrirlesara sendar og því hefur verið ákveðið að setja þær hér á vef KOM.
17.11.2008
Vel heppnaður fundur um efnahagskreppu Færeyja
Um sjötíu manns sátu morgunfund sem bar yfirskriftina: Hvað getum við lært af Færeyingum? sem fram fór á Grand Hótel, í dag, mánudaginn 17 nóv.
12.11.2008
Morgunfundur: Hvað getum við lært af Færeyingum?
KOM almannatengsl boða til morgunfundar mándagsmorguninn 17. nóvember um það hvernig Færeyingar björguðu sér í kreppunni miklu 1992, enda margt sem við getum lært af þessari vinaþjóð okkar.
20.10.2008
Vel heppnaðuð ráðstefna Groundfish Forum í Prag
Hin árlega alþjóðlega ráðstefna stjórnenda fyrirtækja í sölu og framleiðslu sjávarafurða í heiminum, Groundfish Forum, var í ár haldin í Prag í Tékklandi dagana 14. - 16. október. Ráðstefnan var hin sautjánda í röðinni en KOM almannatengsl hafa séð um undirbúning hennar frá upphafi. Ritari ráðstefnunnar hefur einnig frá upphafi verið dr. Alda Möller.
8.10.2008
Iceland News Briefs mikilvæg fréttaveita á krísutímum
Í þeirri efnahagskrísu sem Ísland glímir nú við hefur Iceland News Briefs verið mikilvæg upplýsingaveita fyrir fjölmarga erlenda áskrifendur, svo sem erlend sendiráð á Íslandi, sendiráð og ræðismenn Íslands erlendis, þingmenn og þingforseta erlendra ríkja, fjármálafyrirtæki, iðnfyrirtæki og fleiri.
7.10.2008
KOM leiðréttir fréttir danskra fjölmiðla af bankakrísu
Alþjóðlega fréttaveitan Reuters sendi í gærkvöldi út fréttatilkynningu á ensku um atburðina á Íslandi og ræðu forsætisráðherra. Í tilkynningunni var meðal annars vitnað í forsætisráðherra þegar hann sagði „sú hætta er raunveruleg, góðir landsmenn, að íslenska þjóðarbúið myndi, ef allt færi á versta veg, sogast með bönkunum inn í brimrótið og afleiðingin yrði þjóðargjaldþrot."
6.10.2008
Á leið til Prag
Undirbúningur fyrir alþjóðlegu sjávarafurðaráðstefnuna, Groundfish Forum 2008, er á lokastigi. Ráðstefnan fer fram í Prag í Tékklandi 14. til 16. Þessa mánaðar. Þetta er sautjánda skiptið sem ráðstefnan er haldin en KOM hefur annast skipulag og umsjón með framkvæmd hennar frá upphafi. Ráðstefnuna sitja 220 æðstu stjórnendur stærstu fiskframleiðslu- og sölufyrirtækja heimsins.
2.10.2008
Hvað verður um hefðbundna fjölmiðla?
KOM almannatengsl buðu viðskiptavinum sínum, vinum og velunnurum til morgunverðarfundar um breytingar, þróun og framtíð fjölmiðla að morgni fimmtudagsins 2. október.








