Fréttir
28.8.2008
Bandaríkin unnu ekki silfur í handbolta!
Í nýlegri frétt frá alþjóðlegu fréttastofunni Associated Press kom fram að Bandaríkin hefðu unnið til 110 verðlauna á nýliðnum Olympíuleikum í Beijing. Þar á meðal gullverðlaun fyrir körfubolta, gull eftir tilfinningaþrunginn sigur í blaki karla og silfur í handbolta!
25.8.2008
Ýkt andlátsfrétt
Að undanförnu hafa ráðgjafar KOM fengið fyrirspurnir um alvarlega rekstrarerfiðleika fyrirtækisins. Fyrir þessu er ekki flugufótur. Við höfum hins vegar komist að því að litið fyrirtæki í allt annarri starfsgrein ber heiti sem er mjög áþekkt okkar. Það fyrirtæki hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
25.8.2008
The Times fjallar um olíuleitarsérleyfi á Drekasvæðinu
Breska stórblaðið The Times skýrði í liðinni viku frá undirbúningi fyrir útboð á sérleyfum til olíuleitar á Drekasvæðinu innan íslensku lögsögunnar á svonefndum Jan Mayen-hrygg norðaustur af landinu. Reiknað er með um að um 100 sérleyfi til olíuleitar verði boðin út.
19.8.2008
Fyrsta ráðstefnan um olíuleit haldin í Reykjavík í september
Í framhaldi ákvörðunar iðnaðarráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, í árslok 2007 um upphaf útboða á sérleyfum í janúar 2009 til olíuleitar á Drekasvæðinu, hefur verið boðað til alþjóðlegrar ráðstefnu í Reykjavík dagana 4. og 5. september nk.








