Fréttir
19.11.2009
KOM leggur SÁÁ liđ
Ţað er mat KOM að SÁÁ undir forystu Þórarins Tyrfingssonar hafi lyft grettistaki í að hjálpa alkóhólistum og vímuefnanotednum við að snúa lífi sínu við og losna við sjúkdóminn sem herjar á allt of marga landsmenn. Nú þegar ríkisstjórnin leggur til að farmlag ríkisins til starfsseminnar verði skorin niður um fleiri milljónir ákvað KOM að leggja samtökunum lið við að reyna hafa vit fyrir fjárveitingarvaldinu. Allt frá stofnun KOM árið 1986 hefur fyrirtækið árlega lagt góðgerðar- og líknarfélögum lið með vinnu án endurgjalds.Í ár hafa ráðgjafar KOM unnið fyrir SÁÁ.
11.11.2009
Sjúkrahúsiđ á Akureyri tekur í notkun neyđar- og rýmingaráćtlun
Um þessar mundir er verið að taka í notkun allsherjar neyðar- og rýmingaráætlun fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA). Áætlunin miðar að réttum og fumlausum viðbrögðum starfsmanna FSA við hverskonar vá svo sem eldsvoða og skjótri rýmingu einstakra deilda eða sjúkrahússins í heild. Áætlunin var unnin af verkfræðistofunni VSI - öryggishönnun og ráðgjöf ehf.
9.11.2009
Fćkkun sjófugla, breytingar í útbreiđslu fiskistofna, lífsseig smákvikindi og tvíkynja meri
Fjölbreyttar íslenskar vísindarannsóknir voru til umfjöllunar á ráðstefnu Líffræðifélags Íslands, 6. og 7. nóvember síðastliðinn. Í rúmlega hundrað erindum og á öðrum eins fjölda veggspjalda, var meðal annars fjallað um breytingar í útbreiðslu fiskistofna við landið, fækkun sjófugla, ný íslensk skordýr, ættgenga heilablæðingu, nýja sjúkdóma í laxfiskum, sumarexem í hrossum, breytingar á komutíma farfugla, samskipti stóðhesta, smádýr sem lifðu ísöldina af á Íslandi og tvíkynja meri, svo fátt eitt sé nefnt.
29.10.2009
Hrafnistufréttir
Haustútgáfa Hrafnistubréfsins árið 2009 er komið út. Að venju eru eru í blaðinu áhugaverð og skemmtileg viðtöl við íbúa Hrafnistuheimilanna.
26.10.2009
Íbúafundur í álveri Fjarđaáls
Rúmlega 50 manns mættu til opins kynningarfundar sem haldinn var í mötuneyti Fjarðaáls laugardaginn 24. október síðastliðinn, en það er stefna fyrirtækisins að bjóða íbúum í Fjarðabyggð og nágrannasveitarfélögum til fundar einu sinni á ári, til að greina þeim frá því sem er efst á baugi í fyrirtækinu og gefa þeim tækifæri á að spyrja nánar út í starfsemina.
16.10.2009
Lćknirinn og samfélagiđ
LÆKNIRINN OG SAMFÉLAGIÐ, heilsa - ábyrgð okkar allra, er 28 blaðsíðna sérblað sem KOM almannatengsl gáfu út í samstarfi við Læknafélag Reykjavíkur og dreift var með Morgunblaðinu föstudaginn 16. október.
15.10.2009
Groundfish Forum 2009
Alþjóðlega sjávarafurðaráðstefnan, Groundfish Forum, var haldin á Hilton Nordica hótelinu í Reykjvík 14. og 15. október. Þetta var í annað skiptið, á þeim átján árum sem ráðstefnan hefur verið haldin, sem ráðstefnan fer fram á Íslandi.
25.9.2009
Fjármálakreppan - brást umgjörđ reiknisskila?
Vel á þriðja hundrað manns sóttu ráðstefnu Félags löggiltra endurskoðenda sem haldin var 18. september síðastliðinn. Yfirskrift ráðstefnunnar var: Fjármálakreppan á Íslandi - brást umgjörð reiknisskila?
16.9.2009
Vel heppnuđ heimsókn grćnlenska kórsins Erinnap Nipaa
Grænlenski kórinn Erinnap Nipaa frá Qaqortoq á Suður-Grænlandi hélt þrenna tónleika hér á landi í september. Húsfyllir var á öllum stöðunum og mun um 650 manns hafa hlýtt á kórinn í Seltjarnarneskirkju, Norræna húsinu og á Akranesi. Auk þess sungu Grænlendingarnir á Bessastöðum.
13.8.2009
Hundrađasta tölublađ Iceland Energy and Industry
Hundraðasta tölublaðið af fjölmiðlaskýrslunni Iceland Energy and Industry kom út í vikunni. Í skýrslunni eru dregnar saman á ensku helstu fréttir íslenskra miðla af málefnum stóriðju og orkumálum. KOM almannatengsl hóf útgáfu á skýrslunni fyrir um ári síðan.








