Fréttir
22.1.2009
Nýtt starfsleyfi Sementsverksmiðjunnar ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Starfsleyfi Sementsverksmiðjunnar á Akranesi hefur verið endurnýjað og felur það meðal annars í sér heimildir fyrir verksmiðjuna að auka framleiðsluna. Að mati Skipulagsstofnunar eru breytingarnar sem felast í nýju starfsleyfi ekki líklegar til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og eru því ekki háðar mati á umhverfisáhrifum.
15.1.2009
Ný jógúrt: Ávaxtarík, fitulítil og verulega sykurskert jógúrt frá Mjólkursamsölunni
Nýr vöruflokkur frá Mjólkursamsölunni er kominn í verslanir, jógúrt sem ber heitið Frútína. Nafn vörunnar vísar í hátt ávaxtainnihald jógúrtarinnar sem er þrisvar sinnum meira en í hefðbundinni jógúrt, eða 20%. Jógúrtin er verulega fitu- og sykurskert og er bragðgóður kostur fyrir þá sem vilja hollar og næringarríkar mjólkurvörur.








