Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

27.1.2010

Í starfsnámi hjá KOM

Nú í ársbyrjun hefur Annika Wahl, mastersnemandi í almannatengslum við De Montfort háskólann í Leicester í Englandi, verið í starfsnámi hjá KOM almannatengslum en hluti af náminu er fjögurra vikna starfþjálfum hjá almannatengslafyrirtæki.

25.1.2010

Blótað og dansað á Hrafnistu í Reykjavík

Það var glaumur og gleði á Hrafnistu í Reykjavík að kvöldi bóndadags en þá blótaði heimilisfólkið þorra. Boðið var upp á hefðbundinn þorramat, ferskan og súran, hákarl, hangikjöt og brjóstbirtu, eins og vera ber.

18.1.2010

Samfélagssjóður Alcoa styrkir björgunarsveitir á Austurlandi

Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum (Alcoa Foundation) hefur ákveðið að styrkja björgunarsveitir á Austurlandi um 100.000 Bandaríkjadali næstu tvö árin, eða sem nemur um 12,5 milljónum króna. Styrkurinn verður stofnframlag í menntunarsjóð björgunarsveitarmanna á Austurlandi.

5.1.2010

Leiftursnögg útsending á INB

KOM hefur í fjölda ára gefið út rafrænt fréttabréf á ensku sem heitir Iceland News Briefs (INB). Fréttabréfið fer til fjölda erlendra sendiráða, ESB, alþjóðastofnana, banka, stórfyrirtækja og yfir 300 ræðismanna Íslands svo dæmi séu tekin.