Greinar
Hver er sinnar gæfu smiður

borgarstjóri.
„Hver er sinnar gæfu smiður," segir fornt máltæki. Það á ekki einvörðungu við um almenning heldur einnig stjórnmálamenn. Ég tala nú ekki um stjórnmálaforingja.
Þessa dagana er enn einn pólitíski stormurinn umhverfis borgarstjóra Reykjavíkur vegna ýmissa mála, þ.m.t. væntanlegs listaháskóla og skyndlilegs brotthvarfs fyrrv. aðstoðarmanns hans úr skipulagsráði. Þetta er ekki fyrsti stórsjórinn sem hann lendir í eftir að hafa sest í borgarstjórastólinn og ekki sá síðasti.
Fjölmiðlar og pólitískir andstæðingar eru iðnir við að fjalla um starf og aðgerðir borgarstjóra og sjaldnast er farið mjúkum höndum um hann. Sumt af því sem sagt hefur verið um hann jaðrar við persónulegt níð. Oftar en ekki á borgarstjórinn þó mesta sök á því að koma af stað arfavondri umræðu um borgarmálefni vegna þess hve klaufskur og illa undirbúinn hann er í almannategslum og samskiptamálum.
Hann er ekki einn um þetta. Það er með ólíkindum hve stjórnmálaforingjar hérlendis eru oftast gjörsamlega óundirbúnir þegar þeir þurfa að takast á við erfið og umdeild mál. Það er ekkert skárra þótt þeir sjálfir eigi frumkvæðið að því að koma umdeilanlegum aðgerðum og málefnum á framfæri. Það er löngu sannað að stjórnmálamenn, sem og aðrir stjórendur, sem ekki kunna samskiptatækni og á fjölmiðlun nútímans verða gjarnan undir í deilum og átökum.
Í grannríkjum okkar eru stjórnmálamenn komnir mun lengra í þessum fræðum heldur en þeir íslensku. Hérlendir stjórnmála- og sveitarstjórnarmenn verða að skilja að ef þeir ná ekki tökum á fjölmiðla- og samskiptatækni nútímans þá eiga þeir á hættu að verða undir í eigin bardaga, þar sem vígvöllurinn er fjölmiðlar. Það gerist of oft að forystulið stjórnmálanna mætir óundirbúið í viðtöl, notar óheflað orðaval og heldur að það geti krafsað sig út úr hvaða spurningu sem er. Það er ávísun á klúður. Mitt ráð til borgarstjórans er að hann vandi sig miklu betur við undirbúning málflutnings síns. Annars fer illa í lokin.
Þetta álit Jóns Hákonar Magnússonar
birtist í 24 stundum þann 1. ágúst 2008.








