Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Greinar

Að láta skeika að sköpuðu

bakki

Segja má að júlímánuði hafi lokið með látum þegar fjölmiðlar sögðu síðdegis og um kvöldið fimmtudaginn 31. júlí frá úrskurði umhverfisráðherra þess efnis að álversframkvæmdir á Bakka við Húsavík skyldu metnar heildstætt. Fjölmiðlar voru fyrstir til að sjá úrskurðinn og segja frá málinu. Enda þótt ráðherrann eigi síðasta orðið í máli sem þessu virðist þó af fréttum að dæma sem hann hafi ekki haft neitt samráð við samstarfsráðherra í ríkisstjórn, hvorki í eigin flokki né samstarfsflokknum - enda lét enginn þeirra ná í sig sama dag og úrskurðurinn birtist.

Það var fyrst um hádegi daginn eftir, 1. ágúst, sem náðist í fyrsta ráðherrann, Geir Haarde forsætisráðherra, sem reyndi eftir mætti að róa þær haföldur sem risið höfðu frá því kvöldið áður, einkum á Norðurlandi, þar sem ekki var um annað talað en úrskurðinn, og sagði að í raun væri úrskurðurinn ónauðsynlegur. Einnig náðist á sama tíma samband við samgönguráðherra, flokksbróður umhverfisráðherra, Kristján Möller, og 1. þingmann Norðurlands vestra, sem sagðist hafa verið fullvissaður um að úrskurðurinn tefði ekki framgang málsins.

Að kunna almannatengsl
Það hefði mátt ætla að í svo umdeildu en jafnframt mikilvægu hagsmunamáli sem þessu hefði umhverfisráðherrann undirbúið sig vel og skipulagt ítarlega með hvaða hætti úrskurðurinn yrði kynntur m.t.t. almannatengsla. Það hefði mátt gera ráð fyrir að hann hafði haft samband símleiðis við alla ráðherra ríkisstjórnarinnar og upplýst þá um ákvörðunina áður en úrskurðurinn var kynntur fjölmiðlum. Það hefði mátt ætla að ráðherrann hefði skrifað öllum þingmönnum, öllum sveitarstjórnarmönnum á Norðurlandi og flokkssystkinum sínum þar tölvupóst í sama tilgangi og það hefði mátt ætla að ráðherrann hefði síðan boðaði til blaðamannafundar til að kynna málið og sjónarmið sín með ítarlegum og yfirveguðum hætti, þar sem á þeim tíma væru helstu hagsmunaaðilar meðvitaðir um stöðu mála og viðbúnir tilkynningnunni. Og það hefði mátt ætla að á sama tíma væri úrskurðinn kominn á heimasíðu ráðuneytisins. Það var hins vegar ekki gert fyrr en undir hádegi 1. ágúst. Meira lá á að tilkynna hver yrði næsti veðurstofustjóri.

Taktleysi
Skipulags- og ígrundunarlaust ferli réð för. Afleiðingin: upplausn og kaosástand. Nú, þegar þetta er skrifað, um kl. fjórtán 1. ágúst, hefur enn ekkert heyrst í formanni Samfylkinarinnar, öðrum oddvita ríkisstjórnarinnar, öðrum samflokksráðherrum en Kristjáni eða samflokksþingmönnum. Sá eini í Samfylkingunni sem komið hefur undan súðum til að ausa bátinn hefur til þessa verið Kristján Möller samgönguráðherra. Augu flestra á Norðurlandi beinast nú að Samfylkingunni, sem þess örlagavalds sem helst kýs að bregða fæti fyrir þróun bættra lífskjara í fjórðungnum. Með réttu eða röngu.

Maður spyr sig einatt hvenær sumir stjórnmálamenn ætli að láta verða af því að tileinka sér fagleg vinnubrögð við skipulag almannatgengsla og kynningarmála. Sumir hafa engan áhuga á því. Þeir láta sig hafa það að vaða rakleitt út í fenið og láta skeika að sköpuðu.

Þessi grein Bolla Valgarðssonar, ráðgjafa hjá KOM, birtis í Morgunblaðinu þirðjudaginn 5. ágúst 2008.