Greinar
Samskiptavefir sífellt mikilvægari
Rannsóknin var gerð af fjölmiðlarannsóknafyrirtækinu Cision og meistaranemum í almannatengslum við George University í Bandaríkjunum. 371 blaðamenn og ritstjórar í Bandaríkjunum voru spurðir um notkun þeirra á samskiptavefum við störf sín. 89% þeirra sem svöruðu sögðust nýta sér blogg við fréttaöflun, 65% notuðu samskiptavefi og 55% notuðu örblogg.
Þó álitu 85% svarenda að fréttir á samskiptavefjum væru lélegri heimildir en fréttir hefðbundinna miðla. Vafi á því hvort staðhæfingar byggðu á staðreyndum og léleg framsetning voru nefnd af 49% svarenda sem aðalástæðan fyrir því að vert væri að efast um áreiðanleika frétta sem birtast á samskiptavefum.
Samskiptavefir hafa ekki tekið við hlutverki almannatengla varðandi það að útvega upplýsingar og sérfræðinga til viðtals, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar. 44% svarenda sögðust treysta á almannatengla til að fá viðtöl og aðgang að upplýsingum og sérfræðingum, 23% sögðust nota almannatengla til að fá svör við spurningum og sérhæfðar upplýsingar og 14% til að fá bakgrunnsupplýsingar og samhengi.
"Óreyndir blaðamenn nota upplýsingar úr fréttatilkynningum og frá almannatenglum meira nú en fyrir fimm árum og meira en reyndari blaðamenn," segir í skýrslu um niðurstöður rannsóknanna. Skýrslan er aðgengileg á hér.








