Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Greinar

Undirbúningur er ávísun á góðan árangur

 

Steini
Þorsteinn G. Gunnarsson. 

Frumskilyrði þess að fólk geti komið skoðunum sínum á framfæri er að tala skýrt. Þá er ekki átt við framsögnina eina, heldur að orða hlutina þannig að þeir sem hlusta skilji það sem verið er að segja. Það verður að haga málflutningi þannig að enginn vafi leiki á því sem meint er. Þetta er sú frumregla í samskiptum við fjölmiðla sem því miður gleymist allt of oft.

Slæm frammistaða í fjölmiðlaviðtali getur gert fólk ótrúverðugt, það missir af tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, á erfitt með að verja hagsmuni, fjölmiðlar verða aðgangsharðari og viðkomandi lendir oft í varnarstöðu sem er aldrei gott.

Fjölmiðlar hafa, undanfarnar vikur og mánuði, fjallað um hvert stórmálið af öðru þar sem þingmenn, talsmenn fyrirtækja, samtaka og stofnana hafa veitt viðtöl ýmist í beinum útsendingum ljósvakamiðlanna eða í prentmiðlum. Frammistaða þeirra hefur oft borið þess merki að litlum tíma hafi verið varið í undirbúning fyrir viðtalið eða menn hafi, jafnvel vísvitandi, talað óskýrt, í hálfkveðnum vísum, fegrað hlutina með því að „hagræða sannleikanum“ örlítið eða fara út af sporinu með því að svara spurningu án þess að hafa ígrundað svarið.

Önnur grunnregla í samskiptum við fjölmiðla er að segja satt. Við vitum að „hálfsannleikur oftast er óhrekjandi lygi“. Það skiptir engu hversu fallega við búum um hálfsannleikann, hið sanna kemur ávallt upp á yfirborðið. Fyrrverandi forstjóri FME varði sig á dögunum með þeim rökum að hann hefði aldrei séð gögn sem hann var sakaður um að hafa kallað eftir og lekið í fjölmiðla. Tæknilega rétt, en það sem ekki var sagt kom í ljós og yfirklór forstjórans kom í bakið á honum.

Vinnubrögð slitastjórnar Dróma voru nokkuð í umræðunni á dögunum og umræðan breyttist í „sandkassaleik“ eftir að fulltrúi slitastjórnarinnar sagði m.a. að ekkert „formlegt“ kauptilboð hefði borist í tiltekið lánasafn. Þessi orð kölluðu á yfirlýsingu frá banka og síðan blaðagrein frá fulltrúa Dróma um sama mál. Í stað þess að svara heiðarlega og ljúka málinu urðu orð hans til þess að lengja þá neikvæðu umræðu sem hann var að reyna að leiðrétta og stöðva í viðtalinu.

Fjölmiðlar flytja fréttir hvort sem okkur líkar betur eða verr. Neikvæðar og vondar fréttir eru aldrei fjölmiðlum að kenna, þeir flytja fréttir sem eru byggðar á upplýsingum. Rétt og markviss upplýsingagjöf til fjölmiðla og vel undirbúin viðtöl eru eina leiðin til þess að koma sjónarmiðum á framfæri og leiðrétta hugsanlegar rangfærslur. Að hika eða bíða af sér „gjörningaveður“ í hröðum heimi rafrænnar fjölmiðlunar, er það sama og að tapa.
Enginn er fæddur með þá náðargáfu að koma vel fyrir í viðtölum en markviss þjálfun og undirbúningur talsmanna fyrirtækja og stofnana eru ávísun á betri árangur. Því erfiðara sem málið er og krísan meiri, þeim mun mikilvægara er að búa sig af kostgæfni undir fjölmiðlaviðtalið. Það þarf að skilgreina skilaboðin sem á að koma á framfæri, setjast niður með ráðgjöfum og þeim sem að málinu koma, velta fyrir sér öllum mögulegum og ómögulegum spurningum sem hugsanlega verða bornar upp og finna svör við þeim. Það er fátt verra en að standa á gati í beinni útsendingu.

Sem betur fer hefur það aukist að stjórnendur leiti eftir aðstoð við undirbúning viðtala og þjálfun í fjölmiðlaframkomu. Þeir vita að réttur undirbúningur eykur líkur á því að rétt skilaboð komist með skýrum hætti á framfæri. Góður undirbúningur dregur jaframt úr líkum á að spurningar komi á óvart og kemur í veg fyrir að viðkomandi flæki umræðuna með löngu, ruglingslegu og flóknu máli. Ef enginn skilur okkur er betur heima setið en af stað farið.

Þessi grein Þorsteins G. Gunnarssonar, ráðgjafa hjá KOM, birtist í Morgunblaðinu 21. mars 2012.