Fréttir
26.4.2001
Skilgreina þarf starfsvið almannatengslafyrirtækja
Almannatengsl, eða það sem erlendis gengur undir heitinu "PR", er fyrirbæri sem fólk hefur í mörgum tilfellum takmarkaðan skilning á. Höfuðverkur almannatengsla kristallast einkum í þessu, litlum skilningi á verkum og markmiðum almannatengla og skorti á viðurkenningu stéttarinnar. Í stuttu máli má segja að almannatengslafyrirtæki vinni skipulega að því að tryggja hag umbjóðenda sinna með stefnumótun og ráðgjöf sem miðar að því að byggja upp ímynd, styrkja ásjónu, skapa skilning og auka traust og velvild.
Þekktur PR-ráðgjafi í Englandi, Adrian Chitty getur þess í áhugaverðri grein í apríl-hefti tímaritsins PR-WEEK, að stórt vandamál í starfi hans sé að koma fólki í skilning um markmið og störf almannatengla. Chitty heldur því meðal annars fram í greininni að honum hafi ekki ennþá tekist að skýra það út fyrir móður sinni hvert starf hans sé. Móðirin heldur að hann sé blaðamaður en sé óvenju duglegur að sækja ráðstefnur og kokteilpartí!
Vinsæl námsgrein
PR-starfsemi er vel þekkt í Englandi og stendur þar á gömlum merg. PR-nám nýtur mikilla vinsælda í skólum í Englandi og engin atvinnugrein hefur vaxið hraðar undanfarinn áratug. Þróun almannatengsla er hins vegar mun skemur á veg komin á Íslandi og vandamálin því ennþá meiri fyrir þá sem starfa innan greinarinnar hérlendis. Lítill skilningur ríkir á hlutverki almannatengsla og oft á tíðum þurfa ráðgjafar innan greinarinnar að glíma við neikvæða ímynd í hugum fólks.
Þeir sem gagnrýnt hafa almannatengla, hafa sagt svo dæmi séu tekin, að þeir stuðli að svokallaðri "kranablaðamennsku" sem hafi það að meginmarkmiði að búa til einhliða áróður og viðhalda honum. Slíkar skoðanir gefa mjög ranga mynd af störfum almanntengla og eru greininni til óþurftar. Starf ráðgjafa í almannatengslum felst oft í öflun mikilvægra upplýsinga og koma þeim á framfæri. Í nýlegri könnun sem gerð var í Englandi, mátti meðal annars lesa þá merku niðurstöðu, að almenningur treystir frekar upplýsingum sem koma frá ráðgjöfum í almannatengslum heldur en blaðamönnum. Sjá eldri grein.








