Fréttir
27.4.2001
Stutt á milli happs og glapps
Skilin á milli velsæmis og siðleysis eru ekki alltaf skýr. Almannatengsl eru þar engin undantekning eins og Borkowski PR, almannatengslafyrirtæki á Bretlandi, fékk að kenna á nýverið.
Í aprílhefti PR week er greint frá átaki Amnesty International, sem Borkowski PR vinnur fyrir samtökin. Átakið ber heitið "We know where you live." Sendiráð þeirra ríkja á Bretlandi, sem talin eru fremja mannréttindabrot á þegnum sínum, fá sent nafnlaust símbréf með slagorðinu einu. Hvergi kemur fram hver sendir símbréfið og af hvaða tilefni. Tíu dögum síðar er sent nafngreint símbréf, þar sem samtökin útskýra að um átak gegn mannréttindabrotum sé að ræða.
Einn viðtakandi símbréfsins beið hins vegar ekki við eins og til var ætlast og leit á bréfið sem nafnlausa hótun. Hann eyddi töluverðri orku og tíma í að rannsaka uppruna og bréfsins og eftir þrjá daga kom hið sanna í ljós Â- að um átak Amnesty International gegn mannréttindabrotum væri að ræða. Þá þrjá daga sem rannsóknin stóð yfir þorði viðtakandi símbréfsins ekki að mæta til vinnu af ótta um líf sitt og varð fyrir verulegu áfalli, bæði andlega og fjárhagslega.
Átakið er ágætt dæmi um PR brellu sem snýst upp í andhverfu sína og verður til að skaða bæði PR-fyrirtækið sjálft en þó aðallega viðskiptavininn, í þessu tilviki Amnesty International, að ógleymdum starfsmanni sendiráðsins, sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Stutt getur verið á milli happs og glapps. Ekki er nóg að hafa góðan málstað að verja og upphefja. Aðferðafræðin er ekki síður mikilvæg. PR Borkowski og Amnesty International ættu að vita það - núna.








