
Ímynd fyrirtækja er hugtak sem flestir viðurkenna í dag að skiptir verulegu máli fyrir rekstur þeirra. Hin öfluga franska verslunarkeðja, Standa metur orðspor sitt (personality + image + identity = reputation) á bilinu ein til tvær ársveltur. Það eru allt of fáir stjórnendur íslenskra fyrirtækja sem hafa velt orðspori fyrirtækisins fyrir sér með þessum hætti, þótt full þörf sé á því.
Í Ástralíu var gerð könnun nýverið sem staðfestir þessi orð. Í ljós kom í könnuninni, að flestir þarlendir þegnar ýmist refsa eða verðlauna fyrirtækjum eftir því hvernig ímynd þeirra er í hugum neytendanna. Könnunin sýndi að 35% neytenda rökræða reglulega ímynd og siðfræði fyrirtækja við aðra. Um 60% neytenda til viðbótar töldu sig hafa látið ímyndina ráða miklu um val á vörum.
Könnunin í Ástralíu leiddi það meðal annars í ljós að stór hluti neytenda í Ástralíu vantreystu ýmsum fyrirtækju og sneiddu hjá vörum þeirra vegna ýmissra saka. Meðal þeirra fyrirtækja sem þurftu að þola skerta sölu á sínum varningi, var íþróttavörufyrirtækið
Nike, vegna umræðna um að fyrirtækið notaði börn í þróunarlöndunum við framleiðslu á varningi sínum.
Ísak Örn Sigurðsson