Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

20.3.2006

Nýjar áherslur í þjónustu við aldraða

hrafnista_kopavogur
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri,
á kynningarfundinum sem haldin
var í Salnum í Kópavogi.

Á kynningarfundi fyrir fjölmiðla sem haldin var í dag, mánudaginn 20. mars, kynntu Hrafnistumenn og Kópavogsbær framkvæmdir við nýstárlegt hjúkrunarheimili fyrir aldraða sem hefjast við Boðaþing í Kópavogi strax á fyrri hluta þessa árs. Um er að ræða samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Hrafnistuheimilanna. Viðræður standa yfir við Heilbrigðisráðuneytið um að rekstur heimilisins verði annar en nú þekkist hér á landi, þannig að sjálfstæði og fjárhagslegt fjárræði heimilisfólksins verði meira en nú er í öldrunarþjónustu hérlendis. Þetta rekstrarform hefur reynst vel á hinum Norðurlöndunum og hafa fulltrúar Kópavogsbæjar og Hrafnistuheimilanna kynnt sér starfsemi og rekstur sambærilegra hjúkrunarheimila í Danmörku.

Hugmyndin að baki nýja rekstrarforminu byggir m.a. á því að heimilisfólkið haldi tekjum sínum og greiði sjálft hefðbundin útgjöld, svo sem húsaleigu, fæði, hita og rafmagn, en að hið opinbera greiði fyrir hjúkrun og aðhlynningu. Fyrir vikið verða greiðslur og útgjöld heimilismanna mun sýnilegri en nú er þegar allar greiðslur fara í gegnum tryggingakerfið og heimilisfólkið sér hvorki tekjur sínar né í hvað þær fara. Fáist leyfi fyrir nýja rekstrarforminu heldur heimilisfólkið fjárhagslegu sjálfstæði sínu og samfélagsleg réttindi þeirra og skyldur breytast ekki þótt þeir þurfi á aðhlynningu að halda á hjúkrunarheimili.  

Þá byggir hugmyndin á félagslegu sjónarmiði umönnunar, þ.e. gamla fólkið hefur mjög skerta færni en eru ekki sjúklingar í hefðbundnum skilningi. Hjúkrunaríbúðir verða því heimili gamla fólksins og umönnun og menntun starfsfólks tekur mið af því. Veikist hinn aldraði fær hann tímabundna þjónustu á sérhæfðu sjúkrahúsi, eins og aðrir, en hjúkrunaríbúðin, sem er heimili hans bíður hans. 

Hjúkrunarheimilið sem rísa mun við Boðaþing í Kópavogi samanstendur af þremur 3750 fermetra húsum með hjúkrunarherbergjum, sameiginlegri þvottaaðstöðu, eldhúsi og borðstofu. Húsin þrjú tengjast þjónustumiðstöð með sundlaug, sjúkraþjálfun, dagvistun, netkaffihúsi og félagsmiðstöð sem ætluð er eldri borgurum í Kópavogi, auk heimilisfólks hjúkrunarheimilisins.

Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafi hjá KOM sá um skipulagningu kynningarfundarins og samskipti við fjölmiðla vegna verkefnisins.