Fréttir
5.9.2007
Hill & Knowlton kynna KOM

KOM hefur frá stofnun verið samstarfsaðili Hill & Knowlton International, sem er eitt af þremur stærstu fjölþjóðlegum almannatengsla- og kynningarfyrirtækjum heims. Nýverið útbjó fyrirtækið sérstaka kynningu á starfsemi KOM fyrir viðskiptavini sína um allan heim.
Samstarf KOM og Hill & Knowlton nýtist viðskiptavinum beggja fyrirtækjanna. KOM getur unnið að kynningar-, markaðs- og fjölmiðlunarmálum nánast hvar sem er í heiminum með aðstoð reyndra starfsmanna Hill & Knowlton. Ráðgjafar Hill & Knowlton leita einnig reglulega til KOM eftir upplýsingum og aðstoð við verkefni á sviði almannatengsla og fjölmiðlunar hér á landi.
Hill & með um 58 eigin skrifstofur í um 33 löndum. Að auki er Hill & Knowlton með samstarfsaðila, eins og KOM, í rúmlega 30 löndum.








