Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

11.9.2007

Alcoa tekur þátt í íslenska djúpborunarverkefninu

 

alcoa - djupborun

Frá blaðamannafundinum þar
sem verkefnið var kynnt.

Nýtt samstarfsverkefni um djúpboranir á Íslandi var kynnt á fréttamannafundi í dag. Aðilar að verkefninu eru Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur, Hitaveita Suðurnesja hf., Orkustofnun og Alcoa. KOM almannatengsl unnu með Alcoa að kynningu verkefnisins hér heima og erlendis.

Alcoa telur að djúpboranir gætu verið mikilvægt skref fyrir hagnýta notkun gufuafls um allan heim. Samstarfsaðilar um djúpboranir á Íslandi munu með stuðningi Alcoa kanna hagkvæmni þess að vinna orku og efnasambönd úr háhitasvæðum með því að bora niður á mun meiri hita og þrýsting en áður hefur verið gert. Talið er að slíkar borholur gætu framleitt allt að tíu sinnum meiri raforku en þær borholur sem notaðar eru í dag.

Richard Lamarche, framkvæmdastjóri orkumála hjá Alcoa í Kanada, sat fréttamannafundinn fyrir hönd Alcoa, ásamt Eiríki Sigurðssyni, ráðgjafa hjá KOM almannatengslum.

Fréttatilkynning Alcoa á ensku.