Fréttir
27.9.2007
KOM undirbýr 16. alþjóðlegu Groundfish Forum ráðstefnuna
Verið er að undirbúa alþjóðlegu sjávarafurðaráðstefnuna Groundfish Forum 2007, sem fram fer í Bergen í Noregi í október nk. KOM hefur annast skipulag og umsjón með framkvæmd ráðstefnunnar frá upphafi, eða í rúmlega 16 ár.
Dr. Alda Möller hefur annast gerð dagskrár og ráðstefnurits öll árin. Ráðstefnan er lokuð, en helstu stjórnendum framleiðslu- og sölufyrirtækja sjávarafurða í rösklega 30 löndum í fimm heimsálfum, fá boð um að sækja ráðstefnuna.
Mikil ásókn er í að komast á Groundfish Forum, enda er þetta talin besta ráðstefna í heiminum á þessu sviði, en ef ekkert boðsbréf berst þá komast menn ekki inn.
Ráðstefnan hefur verið haldin víða í Evrópu þ.m.t. á Íslandi árið 2001 og á næsta ári verður hún á Intercontinental hótelinu í Prag. Byrjað er að leita að fyrsta flokks ráðstefnuhótel fyrir árið 2009. Jón Hákon Magnússon hefur haldið utan um skipulagsmálin frá upphafi en að meðaltali koma 3 ráðgjafar KOM að undirbúningi og framkvæmd hverju sinni.
Þriggja manna nefnd hefur undirbúið dagskrá og helstu ráðstefnugögn undir forystu Öldu Möller. Nefndin kom saman til fundar hjá KOM á dögunum en hana skipa auk Öldu þeir Volker Kuntzsch frá Namibíu og Todd Clark frá Bandaríkjunum.
Nýverið fór fram símafundur stjórnar Groundfish Forum og hér má sjá Jón Hákon og Snorra Sturluson ráðgjafa KOM á fundinum sem stóð í rúmlega tvær klukkustundir. Hin myndin er af vinnufundi Öldu, Volkers og Todds sem stóð í tvo daga.








