Fréttir
14.12.2007
Byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði er lokið

Tómas Már Sigurðsson,
Warren McKenzie og Donald
Cameron fagna verklokum.
Mynd: Hreinn Magnússon
Byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði er lokið og voru framkvæmdir á áætlun. Af því tilefni undirrituðu fulltrúar Alcoa og Bechtel formlega yfirlýsingu um lok framkvæmda í nýrri starfsmannabyggingu Fjarðaáls við álverið í Reyðarfirði fimmtudaginn 13. desember 2007. Ekkert alvarlegt slys varð á meðan á framkvæmdum stóð, sem teljast verður einstakt miðað við umfang verksins.
Bechtel og íslenski verkfræðihópurinn HRV sáu um að hanna og reisa álverið, en þetta er stærsta einkaframkvæmd sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Fyrsta skóflustungan að álverinu var tekin 8. júlí 2004. Framleiðsla í nýju álveri Fjarðaáls hófst í apríl síðastliðnum og það var opnað formlega með mikilli hátíð á Reyðarfirði 9. júní í sumar. Stefnt er að því að það nái fullum afköstum á fyrsta fjórðungi næsta árs.
Eiríkur Sigurðsson, ráðgjafi hjá KOM, hafði umsjón með kveðjuhófinu og fjölmiðlun í sambandi við það.








