Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

21.12.2007

Alþjóðleg fjölmiðlun fyrir iðnaðarráðuneyti

 

drekasvaedid

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum samþykkti ríkisstjórn Íslands fyrr í vikunni tillögu Össurs Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra um að stefnt verði að útboði sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi.

Mikilvægt var að koma þessari ákvörðun í heimspressuna með áherslu á fjármála- og olíuiðnaðarmiðla. Þannig ná til allra þeirra aðila sem hugsanlega hefðu áhuga á að bjóða í olíuleitarleyfi í efnahagslögsögu Íslands. Iðnaðrráðuneytið leitaði til KOM eftir aðstoð við að útbúa kynningargöng fyrir fjölmiðla, hérlendis sem erlendis og að kynna ákvöðunina á alþjóðavettvangi

Í náinni samvinnu við Plexus Consulting, samstarfsaðila KOM í Washington, var unnin fjölmiðlagreining og bestu leiða leitað til þess að koma ákvörðun ríkistjórnarinnar sem fyrst til allra þeirra fjölmiðla sem skiptu máli. Samhliða var unnið að gerð ítarefnis og fréttatilkynningu, bæði fyrir alþjóðlega fjölmiðla og innlenda.  Fréttaefnið var sent samtímis á íslensku miðlana og  til 6050 blaða, tímarita og ljósvakamiðla sem flytja fjármála- og orkufréttir, auk þess til 857 miðla sem fjalla sérstaklega um olíu- og orkumál. Fréttirnar hafa þegar birst um allan heim í fleiri miðlum en hægt er að fylgjast með.

Jón Hákon Magnússon og Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafar hjá KOM, voru iðnaðarráðuneytinu til aðstoðar í þessu máli en með þeim unnu Steve Worth og Jennifer Pflasterer hjá Plexus. Fréttinni var dreift rafrænt af alþjóðlegu fréttastofunni PR Newswire.

Hér fyrir neðan eru nokkrar krækjur þar sem sjá má umfjöllun erlendra fjölmiðla um málið:


http://www.transworldnews.com/NewsStory.aspx?id=30853&cat=11

http://uk.reuters.com/article/oilRpt/idUKL1837955120071218

http://www.prnewswire.com/cgi-bin/stories.pl?ACCT=104&STORY=/www/story/12-18-2007/0004724767&EDATE=