Fréttir
27.12.2007
Jólablað Hrafnistubréfsins

Heimilisfólk á Hrafnistuheimilunum fengu Hranfistubréfið á aðventunni. Í blaðinu eru fróðlega og skemmtileg viðtöl við íbúa Hrafnistuheimilanna sem sannarlega muna tímanna tvenna.
Hrafnistubréfið er að öllu leyti unnið af KOM og það kemur út tvisvar sinnum á ári, fyrir Sjómannadaginn og fyrir jól.
Forsíðumynd Hrafnistubréfsins er af styttu sem stendur í miðbæ Eskifjarðar og er eftir danska listamanninn Age Nielsen Edwin. Styttan var afhjúpuð árið 1981. Á stöpli styttunnar stendur: „Til minningar um drukknaða sjómenn frá Eskifirði.”
Hreinn Magnússon ljósmyndari tók forsíðumyndina, en hefð er fyrir því að minnismerki um sjómenn prýði forsíðu Hrafnistubréfsins.
Hrafnistuheimilin eru fjögur, Hrafnista í Reykjavík og Hafnarfirði, sem Sjómannadagsráð byggði og rekur, en að auki rekur Sjómannadagsráð hjúkrunarheimili fyrir aldraða á Víðinesi og Vífilsstöðum.








