Fréttir
26.5.2010
Staðreyndir um Alcoa Fjarðaál
Málefni áliðnaðarins eru iðulega til umræðu á opinberum vettvangi, enda ein af stærstu útflutningsgreinum Íslendinga. Alcoa Fjarðáál uppfærði nýlega sérstakt staðreyndablað "facht sheet" um reksturinn á Reyðarfirði, þar sem haldið er til haga helstu lykiltölum og upplýsingum um áhrif hans á afkomu þjóðarbúsins og nærsamfélagið fyrir austan.
Í tilefni sveitarstjórnarkosninganna 2010 og til að stuðla að upplýstri umræðu var staðreyndablaðinu dreift til frambjóðenda í sveitarfélögunum, allt frá Höfn í Hornafirði til hins sameinaða sveitarfélags Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar auk þess sem alþingismenn fengu skjalið sent.
Bolli Valgarðsson, ráðgjafi hjá KOM, hafði umsjón með útgáfu staðreyndablaðsins.








