Fréttir
31.5.2010
Rúmlega 32 þúsund virkir sjóðfélagar í Lífeyrissjóði verzlunarmanna
Raunávöxtun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) var jákvæð um 1,1% á síðasta ári og eignir sjóðsins nema nú tæpum 300 milljörðum og eru nú um 30 milljörðum króna hærri en þær voru fyrir hrun bankanna og íslenska efnahagskerfisins. Eignir LV eru um 16% af heildareignum íslenskra lífeyrissjóða. Þetta kom fram á ársfndinum LV sem haldinn var á Grand Hótel Reykjavík í dag, mánudaginn 17. maí 2010.
Það voru ráðgjafarnir Róbert Róbertsson og Jón Hákon Magnússon sem aðstoðuðu LV við fjölmiðlunina fundardaginn.








