Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

1.6.2010

Hrafnistufréttir

 

hrafnistufrettir_mars

Fyrra tölublað Hrafnistufrétta á árinu kom út í mars, að venju bólgið af efni. Hrafnistufréttir eru gefnar út tvisvar á ári. Þær eru prentaðar í tvö þúsund eintökum og er dreift til heimilismanna og starfsfólks auk annarra dvalar- og hjúkrunarheimila á landinu, heilsugæslustöðva, læknastofa, sveitarstjórnarfólks og alþingismanna.

Í síðasta blaði voru viðtöl við Jón Lárus Hjartarson, heimilismann í Víðinesi, hjónin Ólaf Jakob Helgason og Veroniku Pétursdóttur frá Patreksfirði, sem búa á Hrafnistu við Laugarás, og útgerðarhjónin Guðmund Ólafsson og Jane Maríu Ólafsdóttur frá Keflavík. Einnig var rætt við Ingibjörgu Tómasdóttur, forstöðukonu Hrafnistu á Vífilsstöðum, en heilbrigðisyfirvöld ákváðu að hjúkrunarheimilinu þar verði lokað síðar á árinu ásamt Hrafnistu í Víðinesi.

Í blaðinu var gerð grein fyrir nýju hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi, sem tók til starfa í vor, en heimilið starfar í samræmi við dönsku hugmyndafræðina Leve og bo. Einnig var greint frá þeim miklu endurbótum, sem standa yfir í F-álmu á Hrafnistu við Laugarás, þar sem herbergi hafa verið stækkuð með sameiningu herbergja.

Fjölmargt annað efni er í blaðinu, sem nálgast má hér á rafrænu formi.

Bolli Valgarðsson, ráðgjafi hjá KOM, hefur umsjón með útgáfu Hrafnistufrétta.