Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

7.7.2010

Fjarðaálsfréttir komnar út!

 

fjardaalsfrettir_
 

Í nýútkomnu tölublaði Fjarðaálsfrétta, segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, að löngum hafi þótt erfitt að laða erlenda fjárfestingu til Íslands enda landið lítið og langt frá mörkuðum. Engu að síður hafi nokkur erlend stórfyrirtæki fjárfest hér og skapað þúsundir öruggra framtíðarstarfa og tryggt þjóðarbúinu verðmætar útflutningstekjur með vöruútflutningi og kaupum á vöru og þjónustu auk stærsta hluta af orku íslensku fallvatnanna.

Tómas segir ekkert hafa verið til sparað þegar ráðist var í byggingu álversins við Reyðarfjörð. „Ný og fullkomin framleiðslutækni var innleidd, háleit markmið sett í öryggismálum og umhverfisvernd auk þess sem vinna í anda sjálbærni varð forgangsmál. Starfsmenn voru hvattir til að láta gott af sér leiða í samfélaginu og tóku áskoruninni. Ótalin eru námskeiðin sem starfsmenn Alcoa Fjarðaáls hafa sótt til að mennta sig í öryggismálum, framleiðslustjórnun, teymisvinnu, stefnumótun og viðskiptasiðferði svo fátt eitt sé nefnt. Með hinum erlenda fjárfesti fluttist mikil og verðmæt þekking til Austfjarða og til Íslands. Á álverslóðinni og aðliggjandi hafnarsvæði í Reyðarfirði, hafa um 800 manns atvinnu. Verðmæti álútflutnings okkar í fyrra nam rúmlega 200 milljónum króna á sólarhring eða 1,4 milljarði króna í viku hverri,“ segir Tómas.

Hann segir þjóðina verða að vinna sig út úr djúpri kreppu og gríðarlegum skuldum. Ein leiðin til þess sé að skapa fleiri langtímastörf og traustar útflutningstekjur með öflun erlends fjármagns til atvinnusköpunar hér á landi. Það kunni þó að reynast erfitt, m.a. vegna misvísandi skilaboða yfirvalda, nýrra skatta og breytinga á þegar gerðum fjárfestingarsamningum. „Hverjar svo sem skoðanir manna kunna að vera á erlendri fjárfestingu er ljóst, að eina leiðin fyrir Íslendinga til að vinna sig út úr kreppunni er að nýta auðlindir þjóðarinnar til sjós og lands, með skynsamlegum hætti. Skynsamleg auðlindanýting skapar hundruð ef ekki þúsundir vel launaðra framtíðarstarfa. Nú eru um 14 þúsund manns atvinnulaus í kjölfar hrunsins. Er það réttlætanlegt að ekki sé unnið skipulega að því að laða að erlendar fjárfestingar til að skapa störf, auka gjaldeyristekjur og nýta óbeislaða orku landsins? Það er sameiginleg krafa aðila vinnumarkaðarins að unnið verði samtaka að því að laða að erlent fjármagn, skapa trygg störf fyrir allar vinnandi hendur nú og í framtíðinni og breyta ónýttri orku í tekjur sem við notum sameiginlega til að byggja upp efnahag Íslands að nýju,“ segir Tómas Már Sigurðsson.

Meðal annars efnis í blaðinu má nefna viðtal við fjóra framkvæmdastjóra hjá fyrirtækinu, sem allir eru konur, en þær ræða m.a. upphaf íslenska ævintýrisins fyrir austan, vinnustaðinn og samfélagið á Austurlandi. Einnig má nefna umfjöllun um samtökin Vini Vatnajökuls, sem Alcoa styrkir með veglegum hætti vegna verkefna til uppbyggingar í stærsta þjóðgarði Evrópu, Vatnajökulsþjóðgarði. Þá er gerð grein fyrir sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar, sem þykir einstakt á heimsvísu enda ekki vitað um önnur sambærileg verkefni.

Bolli Valgarðsson, ráðgjafi hjá KOM almannatengslum, hafði umsjón með útgáfu blaðsins.