Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

9.12.2011

Lamaðir ganga á ný

 

ekso_1
Amanda Boxtel sýnir fréttamanni sjónvarps hvernig þarkinn virkar.
 
ekso_2
Gönguþjarkinn vakti mikla athygli fatlaðara en um 60 manns sóttu kynningarfund Ekso.
 
Hér má sjá umfjöllun sem birtist í:

Kastljósi

Fréttum Stöðvar 2

Fólk, lamað fyrir neðan mitti vegna mænuskaða, hefur öðlast möguleika á að ganga á ný með hjálp gönguþjarka sem er þróaður og framleiddur hjá bandaríska hátæknifyrirtækinu Ekso Bionics. Búnaðurinn var kynntur fyrir fötluðum og fjölmiðlum í Hörpu, fimmtudaginn 8. desember.

Það tekur lamaðan einstakling einungis fáeina daga að ná fullu valdi á þjarkanum og fara ferða sinna með hans aðstoð. Þjarkinn samanstendur af stoðgrind og spelkum fyrir fætur. Tölva er á bakstykki þjarkans en skynjarar nema hreyfingar efri hluta líkamans og stjórnar göngunni út frá þeim. Gönguþjarkinn er knúinn áfram af rafhlöðum og fjórum mótorum.

Nú þegar vinna tíu af fremstu endurhæfingarstofnunum Bandaríkjanna með Ekso Bionics að því að prófa og kynna þessa nýju tækni og nokkur fjöldi lamaðra einstaklega er þegar farinn að nota búnaðinn. Þar á meðal er Amanda Boxtel sem sýnir notkun gönguþjarkans hér á landi. Amanda, sem hefur verið í hjólastól í 18 ár eftir að hafa lamast fyrir neðan mitti í skíðaslysi, getur nú gengið með hjálp gönguþjarkans. „Í 18 ár dreymdi mig að geta gengið á ný. Nú geri ég drauminn að veruleika, bókstaflega skref fyrir skref,“ sagði Amanda á kynningunni í Hörpu.

Fyrsta útgáfa búnaðarins er hugsuð fyrir endurhæfingu lamaðra og kemur á markað í byrjun næsta árs. Þegar er hafin hönnun á næstu útgáfu sem mun nýtast lömuðum til einkanota í daglegu lífi. Sú útgáfa er væntanleg á markað í árslok 2013. Eyþór Bender forstjóri Ekso Bionics er ánægður með að Ísland sé eitt af fyrstu Evrópulöndunum þar sem fyrirtækið kynnir Ekso gönguþjarkann. „Við finnum fyrir miklum áhuga hérlendis og vonandi líður ekki á löngu þangað til að við getum komið fyrstu Íslendingunum af stað í Ekso þjarkanum.“ Auk Eyþórs eru tveir aðrir Íslendingar meðal æðstu stjórnenda fyrirtækisins, Karl Guðmundsson er framkvæmdastjóri markaðssviðs og Kolbeinn Björnsson, framkvæmdastjóri sölusviðs.

Gönguþjarkinn hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim á undanförnum misserum. Vikuritið Time Magazine valdi þjarkann  sem eina af 50 athyglisverðustu uppfinningum ársins 2010.

Jón Hákon Magússon, Páll Þorsteinsson og Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafar hjá KOM aðstoðuðu Ekso við fjölmiðlun og kynningar á gönguþjarkanum hér á landi.