Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

21.12.2011

1700 tölublöð INB á 17 árum

 

inb_1700
Ritnefndin: Jón Hákon Magnússon, Páll Rafnar Þorsteinsson og Bolli R. Valgarðsson. 
 
 

Í rúm sautján ár hafa KOM almannatengsl gefið út enska fréttabréfið Iceland News Briefs (INB) fyrir þá sem ekki lesa íslensku en þurfa að fylgjast með fréttum á Íslandi. Þriðjudaginn 19. desember sl. kom út tölublað númer 1700 frá upphafi, en fyrsta bréfið kom út 27. júlí 1994. INB kemur út á mánudögum og fimmtudögum og fer rafrænt til fleiri hundruð áskrifenda í fimm heimsálfum. Þeirra á meðal eru um 250 ræðismenn Íslands víðsvegar um heiminn.

Nýverið gerði KOM árlega skoðanakönnun meðal áskrifenda INB og sögðu 86,4 % þeirra að þeir væru mjög ánægðir með fréttabréfið. Í svari ræðismanna við spurningunni sögðust 64,3% vera ánægðir með INB og 35,7% vera mjög ánægðir með það. Það er einróma skoðun ræðismannanna að INB auðveldi þeim að sinna málefnum Íslands.

Meðal áskrifenda INB eru ennfremur vel á fjórða tug erlendra sendiráða, alþjóðastofnanir, ESB, bankar, greiningarfyrirtæki og fleiri aðilar sem láta málefni Íslands sig varða. KOM gefur einnig út viklulega enskt fréttabréf sem heitir Iceland Energy and Industry (IEI) og sem er ætlað erlendum iðnfyrirtækjum, orkufrekum iðnaði og áhugasömum fjárfestum í orkutengdum iðnaði.

Þeir sem sjá um útgáfu INB um þessar mundir eru Jón Hákon Magnússon, Páll Rafnar Þorsteinsson, Bolli R. Valgarðsson og Daniel Teague þýðandi.