Fréttir
5.1.2012
Ritfangaverslanirnar Office 1 og A4 undir einn hatt
Heildverslunin Egilsson ehf., eigandi Office 1, hefur keypt rekstur ritfangaverslana A4 af Björg slhf., sem er eignarhaldsfélag í eigu Sparisjóðabankans hf. Með viðskiptunum hafa einkaaðilar tekið á nýjan leik við rekstri stórs hluta verslunar með ritföng og skólavörur hér á landi, sem lánastofnanir yfirtóku í kjölfar efnahagshrunsins.
Egilsson keypti rekstur verslana Office 1 árið 2005 af Tæknivali hf. og hafa þær á undanförnum árum fest sig í sessi sem ein öflugasta ritfangaverslunarkeðja landsins með rekstrarvörur fyrir skrifstofur, skóla, stofnanir og einstaklinga. Framkvæmdastjóri sameinaðra ritfangaverslana er Egill Þór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Egilssonar ehf.
Verslanir Office 1 tóku til starfa á vegum Tæknivals hf. árið 2001, en árið 2005 keypti Egilsson reksturinn. Verslanir Office 1 eru nú fjórar á höfuðborgarsvæðinu, Egilsstöðum og Selfossi, og tvær verslanir A4 eru staðsettar í Reykjavík og á Akureyri. Rekstur verslananna verður óbreyttur fyrst um sinn, en miklar hagræðingaraðgerðir og skipulagsbreytingar hafa átt sér stað hjá báðum fyrirtækjunum á undanförnum misserum.
Ráðgjafar seljanda A4 var Arev verðbréfafyrirtæki hf. Ráðgjafar kaupanda voru Alda sjóðir hf. og lögmannsstofan Aktis ehf. Kaupverð er trúnaðarmál.
Bolli Valgerðsson, ráðgjafi hjá KOM almannatengslum, var Egilsson til aðstoðar við fjölmiðlun.








