Fréttir
13.1.2012
Gripið hefur verið til viðeigandi ráðstafana vegna díóxíns
Magn díóxíns og köfnunarefnisoxíðs reyndist yfir viðmiðunarmörkum þegar útblástur frá Sorpsamlagi Þingeyinga var mældur þann 29. september 2011 en niðurstöður mælinganna bárust 5. janúar síðastliðinn.
Bæði efnin voru undir viðmiðunarmörkum í mælingu sem gerð var 8. febrúar 2011. Stjórnendur Sorpsamlagsins hafa nú þegar gripið til viðeigandi ráðstafana og gera ráð fyrir að efnin verði innan viðmiðunarmarka þegar útblásturinn verður mældur að nýju í febrúar næstkomandi.
Stjórnendur samlagsins telja að hærra hlutfall lífræns úrgangs í sorpinu í sláturtíðinni í haust og breytt endsneytisnotkun hafi tímabundið aukið hlutfall efnanna í útblæstri Sorpsamlagsins.
Daginn sem mælingin var gerð var hlutfall sláturúrgangs um 30% sorpsins, en þá stóð sláturtíð sem hæst. Að auki má reikna með að hlutfall lífræns úrgangs í almennu sorpi hafi verið um 25%. Þetta háa hlutfall lífræns úrgangs er talið hafa aukið tímabundið díoxin í útblæstrinum. Stjórnendur samlagsins munu nú endurskoða móttöku sína á sláturúrgangi og flokkun á lífrænum úrgangi frá almenningi.
Til þess að draga úr rekstrarkostnaði var ákveðið sumarið 2011 að blanda dísilolíu, sem notuð er í brennara, með flotaolíu. Talið er að flotaolían hafi aukið köfnunarefnisoxíð í útblæstrinum og hefur notkun hennar nú verið hætt.
Það er mat stjórnenda Sorpsamlags Þingeyinga að framangreindar aðgerðir lækki hlutfall díóxíns og köfnunarefnisoxíðs í útblæstrinum og að efnin séu þegar komin niður fyrir viðmiðunarmörk. Sérfræðingar munu næst mæla efnisinnihald útblásturs Sorpsamlagsins í febrúar næstkomandi.
Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafi hjá KOM, aðstoðaði við Sorpsamlag Þingeyinga við fjölmiðlun vegna málsins.









