Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

2.2.2012

Bandaríkin og Ísland: 70 ára viðskiptasögu minnst

.

bandariski_sendiherrann
Luis Arreaga,sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.

Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi minntist á dögunum 70 ára viðskiptaafmælis þjóðanna með veglegu samkvæmi á Nasa við Austurvöll. Gestalisti sendiráðsins var langur, en um 700 manns mættu í fögnuðinn og skemmtu sér fram eftir kvöldi

Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Luis Arreaga, setti samkomuna og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti erindi. Tónliarmaðurinn Jason Dodson frá Seattle skemmti auk Lay Low og hljómsveitinni Of Monsters and Men.

Í samkvæminu var frumsýnt myndband sem unnið var af KOM almannatengslum þar sem rætt var við sjö Íslendinga sem sögðu frá kynnum sínum og upplifun af Bandaríkjunum og bandarísku þjóðlífi.

Myndbandið kallast U.S: - Icelandic Relations: 70 Years and Going Strong og hægt er að skoða það hér.

Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafi hjá KOM, aðstoðaði bandaríska sendiráðið við myndbandagerðina.