Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

28.3.2012

Mest ánægja meðal íbúa Garðabæjar samkvæmt þjónustukönnun Capacent

 

gardabaer_klukka
 

Mikil ánægja er með þjónustu Garðabæjar við íbúa sveitarfélagsins. Ríflega 94% íbúanna telja að það sé gott að búa í Garðabæ og almennt eru bæjarbúar ánægðari með þjónustu sveitarfélagsins en íbúar annarra sveitarfélaga. Þetta kemur fram í þjónustukönnun sem Capacent gerði í 16 stærstu sveitarfélögum landins í október síðastliðnum. Í könnuninni var spurt út í viðhorf íbúa til 11 þátta í þjónustu viðkomandi sveitarfélags. Kom Garðabær best út í 7 flokkum af 11, í einum flokki var bærinn í öðru sæti, þriðja í tveimur og fimmta í einum.

Þegar bornar eru saman einkunnir sveitarfélaganna eftir flokkum kemur í ljós að Garðabær var efstur á blaði þegar spurt var um almenna ánægju með bæinn sem búsetustað, almenna ánægju með þjónustu sveitarfélagsins, skipulagsmál, gæði umhverfis í nágrenni við heimili, þjónustu við barnafjölskyldur, þjónustu grunnskóla bæjarins og loks ánægju með viðbrögð starfsfólks á bæjarskrifstofum við erindum íbúa. Síðasta spurningin var aðeins lögð fyrir þá sem höfðu samskipti við bæjarskrifstofur á undangengnum tveimur árum.

Garðbæingar gefa bænum sínum hæstu einkunn þegar spurt er: „Á heildina litið hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með þitt sveitarfélag sem stað til að búa á? Einkunnir voru gefnar á kvarðanum 1-5 og er ánægjan því meiri sem gildið er hærra. Heildareinkunn Garðabæjar við þessari spurningu er 4,5.

Könnunin var gerð dagana 4.-20. október 2011. Úrtakið var alls 8.360 manns, þar af 512 úr Garðabæ.

Páll Rafnar Þorsteinsson, ráðgjafi hjá KOM, aðstoðaði Garðabæ við fjölmiðlun vegna könnunarinnar.