Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

27.4.2012

Úrskurður Landsdóms – KOM skipulaði fjölmiðlun

.

ghh
Það var sannarlega handagangur í öskjunni þegar Geir H. Haarde ávarpaði fjölmiðlafólk í Þjóðmenningarhúsinu. 

Fjöldi fjölmiðlamanna var viðstaddur dómsuppkvaðningu Landsdóms í máli Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, eins og við var að búast. Fyrir uppkvaðninguna hafði fjöldi fjölmiðla, innlendra sem erlendra, óskað eftir viðbrögðum Geirs og ljóst að svara þyrfti beiðnunum á skilvirkan hátt til þes að forðast glundroða. Geir leitaði til KOM almannatengsla til þess að skipuleggja og sjá um framkvæmd fréttamannafundar og skipuleggja einkaviðtöl að honum loknum

Þegar dómurinn hafði kveðið upp úrskurð sinn fór Geir afsíðis með verjanda sínum Andra Árnasyni og saman fóru þeir yfir dómsorðið. Á meðan komu fjölmiðlamenn sér fyrir í anddyri Þjómenningarhússins, enda höfðu þeir fyrr um morguninn fengið skilaboð frá KOM um að þar myndi Geir ávarpa fjölmiðlafólk og svara spurningum þess.

Að fréttamannafundinum loknum bauðst fjölmiðlum að taka stutt einkaviðtöl við Geir og sáu ráðgjafar KOM um skipulag þeirra viðtala, bæði innlendra og alþjóðlegra fréttamiðla.

Fjölmiðlafólk lýsti yfir ánægju með skipulag fjölmiðlunarinnar og vefmiðillinn Pressan sá ástæðu til að segja í umfjöllun sinni um dóminn „Það var almannatengslastofan KOM sem skipulagði daginn fyrir Geir eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp. Allt gekk mjög snurðulaust fyrir sig á þröngum göngum Þjóðmenningarhússins.”

Jón Hákon Magnússon og Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafar hjá KOM voru Geir til aðstoðar við flölmiðlunina.

Hér má lesa yfirlýsingu sem Geir samdi og sendi frá sér í kjölfar dómsuppkvaðningarinnar