Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

29.4.2012

Austfirðingar vilja ný Norðfjarðargöng!

 

ny_nordfjardargong
Hér verða ný Norðfjarðargöng. Klikkið á myndina til þess að sjá stærri útgáfu hennar. 

Bæjarstjón Fjarðarbyggðar hefur í ályktun skorað á Alþingi Íslendinga að setja framkvæmdir við ný Norðfjarðargöng í algjöran forgang. „Aðeins þannig verða öruggar samgöngur tryggðar innan Fjarðabyggðar og við þjóðvegakerfið. Norðfjarðargöng auka lífsgæði íbúa Fjarðarbyggðar og eru forsenda þess sveitarfélagið verði endanlega gert að einu atvinnusvæði,“ segir í ályktuninni sem lesa má í heild sinni hér.

Jón Hákom Magnússon, Sirrý Hallgrímsdóttir og Þorsteinn G. Gunnarsson, ráðgjafar hjá KOM eru Fjarðarbyggð til aðstoðar við fjölmiðlun og almannatengs vegna nýrra Norðfjarðarganga.