Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

3.5.2012

Með doktorspróf frá Cambridge

 

dr_pall
Dr. Páll Rafnar Þorsteinsson.
 
dr_pall_2  
Dr. Páll & KOM.
Með því að smella á myndirnar má sjá stærri útgáfur þeirra.

Páll Rafnar Þorsteinsson, ráðgjafi hjá KOM, útskrifaðist nýlega frá Cambridge háskóla með doktorsgráðu (PhD) í heimspeki og klassískum fræðum. Hann lauk BA prófi 2002 frá Háskóla Íslands, MSc prófi frá London School of Economics árið 2003 og stundaði doktorsnám við Cambridge háskóla 2006 til 2010. Rannsóknasvið Páls er stjórnmála- og réttarheimspeki og fjallaði doktorsritgerð hans um hugmyndir gríska heimspekingsins Aristotelesar um lög og réttlæti.

Starfsfólk KOM færði Dr. Páli blóm í tilefni af útskriftinni, en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá október 2011.