Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

15.5.2012

Starfsemi Amerísk-íslenska verslunarráðsins endurvakin

 

am_is
Sjórn Amerísk-íslenska verslunarfélagsins.
Ef smellt er á myndina kemur stærri útgáfa hennar í ljós.

Amerísk-íslenska verslunarráðið, AMIS, var endurstofnað 10. maí s.l. en nokkur ár eru liðin frá því að forveri þess lognaðist útaf en það var stofnað árið 1988.

Í Bandaríkjunum er starfandi Íslensk ameríska verslunarráðið sem hefur verið mjög öflugt í fjölda ára við að efla samskipti ríkjanna tveggja. Markmið AMIS er að styrkja samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta, verslunar, menningar- og menntamála. Mikill áhugi hefur verið á að endurvekja ráðið hérlendis til að stuðla að bættum samskiptum og til að greiða fyrir viðskiptum til að efla samvinnu fyrirtækja í löndunum tveimur. Á
síðasta ári var þess minnst að 70 ár eru liðin frá því að formleg samskipti milli landanna hófust árið 1941.

Jón Hákon Magnússon, ráðgjafi hjá KOM, var í hópnum sem tók að sér að endurnýja starfssemi AMIS. Stofnfélagar er rúmlega 100 fyrirtæki, samtök og einstaklingar. Stjórn AMIS skipa Birkir Hólm Guðnason, formaður, Stein Logi Björnsson, Sigríður Á. Andersen, Gylfi Sigfússon, Margrét Sanders, Sigsteinn P. Grétarsson, Pétur Þ. Óskarsson og Jón Hákon Magnússon. Framkvæmdarstjóri AMIS er Kristín Hjálmtýsdóttir og félagið hefur aðsetur hjá Viðskiptaráði Íslands.