Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

KOM - Almannatengsl

Við og þú erum kjarni KOM. Við sem vinnum hjá KOM, og þú sem við vinnum fyrir. Við trúum á stefnumótandi samstarf til langs tíma og við leggjum hart að okkur til að þú náir árangri. Við erum ekki já-fólk og við gerum ekki málamiðlanir til þess eins að gleðja þig. Við segjum hlutina eins og þeir eru og ráðum þér alltaf heilt.

Bestu lausnirnar felast ekki endilega í stórbrotnum aðgerðum. Besti árangurinn hverju sinni grundvallast á faglegu mati og ígrunduðum hugmyndum þar sem viðfangsefnið er krufið til mergjar með hliðsjón af margvíslegum mögulegum lausnum. Við erum skuldbundin hagsmunum viðskiptavinanna og byggjum samstarfið á gagnkvæmri hollustu. Þolinmæði og úthald eru okkar kjörorð. Þess vegna byggjum við á áralöngu samstarfi við viðskiptavini okkar.

Við erum KOM