Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Sagan

KOM almannatengsl voru stofnuð 1986. Formlegt nafn fyrirtækisins er Kynning og markaður – KOM ehf., en okkur þykir þjálla að tala bara um KOM almannatengsl. Stofnendur og eigendur fyrirtækisins eru hjónin Áslaug Harðardóttir og Jón Hákon Magnússon.

Fyrsta stórverkefni KOM fólst í uppsetningu, skipulagi og umsjón með fjölmiðlamiðstöð í Hagaskóla fyrir fréttamenn frá erlendum fjölmiðlum sem sendu fulltrúa sína til landsins vegna leiðtogafundar Gorbachev og Reagans í Höfða 1986.

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Í upphafi voru starfsmenn tveir. Þeir eru nú átta auk fjölda undirverktaka og samstarfsaðila.

Í stóru sem smáu