Páll Rafnar Þorsteinsson - Starfsfólk KOM
Páll Rafnar Þorsteinsson er með BA próf í heimspeki og grísku frá Háskóla Íslands, MSc í stjórnmálaheimspeki frá London School of Economics and Political Science og doktorsgráðu í heimspeki og klassískum fræðum frá Cambridge háskóla í Bretlandi. Hann hefur starfað sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu, fengist við þýðingar og stundað rannsóknir á sviðum siðfræði, mennta- og stjórnvísinda bæði á Íslandi og erlendis.









