Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Jón Hákon Magnússon - Starfsfólk KOM

Jón Hákon Magnússon
Framkvæmdastjóri
Beinn sími: 540 8818
GSM: 896 0460

Jón Hákon Magnússon, stofnandi KOM, er með þrefalt BA-próf frá Macalester College í Minnesota í stjórnmálafræði, fjölmiðlun og bandarískri sögu.

Hann hefur mestalla starfsævi sína verið viðloðandi fjölmiðlun á einn veg eða annan. Jón Hákon hefur verið blaðamaður, bæði hérlendis og í Bandaríkjunum, fréttamaður á Sjónvarpinu, skrifað mikið í erlenda blöð og var fréttaritari Financial Times um árabil. Hann var yfirmaður alþjóðlegu fjölmiðlamiðstöðvar Reykjavíkurfundar Reagans og Gorbasjovs og í kjölfarið ráðgjafi ríkisstjórnar Möltu vegna fundar Bush og Gorbasjovs.

JónHákon hefur verið félagi í The Institute of Public Relations í Bretlandi frá 1990, European Association of Public Relations Consultants frá 1993 og International Public Relations Association frá 1993. Jón Hákon var formaður Almannatengslafélags Íslands frá 2003 til 2005.

Jón Hákon ritstýrir ensku fréttariti KOM, sem sent er um allan heim tvisvar í viku. Það heitir Iceland News Briefs (iNB) og hefur verið gefið út frá því í sept. 2004.

Jón Hákon er eigandi og framkvæmdastjóri KOM Almannatengsla.