Þorsteinn G. Gunnarsson - Starfsfólk KOM
Þorsteinn G. Gunnarsson nam íslensku við Háskóla Íslands.
Áður en hann hóf störf hjá KOM sinnti hann ráðgjafastörfum hjá almannatengslafyrirtækinu Athygli. Þorsteinn hefur víðtæka reynslu sem fjölmiðlamaður enda hefur hann starfað sem blaðamaður við dagblöð og tímarit, við dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Þorsteinn var um tíma framkvæmdastjóri samtakanna Íþróttir fyrir alla og forstöðumaður markaðssviðs auglýsingastofunnar AUK. Hann hefur því umtalsverða reynslu af auglýsinga- og markaðsmálum og skipulagningu margvíslegra viðburða.
Hjá KOM sinnir Þorsteinn ýmiskonar textagerð og útgáfumálum, samskiptum við fjölmiðla og almennri ráðgjöf á sviði almannatengsla og áfallaaðstoðar.









