Ólafur G. Guðlaugsson - Starfsfólk KOM
Ólafur Gunnar Guðlaugsson lauk BA-gráðu í almennri auglýsingagerð frá The Art Institute of Ft. Lauderdale í Bandaríkjunum með hæstu einkunn 1988.
Ólafur hefur komið víða við á gæfuríkum ferli. Hann var útlitshönnuður DV á árunum 1996-99, gegnir sama hlutverki við tímaritið Ísafold, en aðallega hefur Ólafur þó unnið sem sjálfstæður grafískur hönnuður.
Ólafur sér um alla grafíska útlitsvinnu fyrir KOM. Þess má geta til gamans að Ólafur er höfundur búálfsins vinsæla, hans Benedikts.









